Stjörnukírópraktorinn og áhrifavaldurinn Guðmundur Birkir Pálsson, eða Gummi kíró eins og hann er oft kallaður, er þekktur fyrir einstakan smekk og er ein skærasta stílstjarnan á Íslandi um þessar mundir. Hann stendur undir nafni á Instagram í dag þar sem hann deilir skotheldum jólagjafahugmyndum fyrir herramenn sem eiga allt.
Allar þessar hugmyndir eiga það sameiginlegt að það er hægt að panta þessar gjafir á netinu eða versla á Íslandi.
Gummi segir að hann hafi notað nýja herra ilminn frá Ralph Lauren um leið og hann kom í verslanir. „Geggjaður fyrir veturinn. Mjög haust/vetrarlegur en á sama tíma ferskur.“
Gummi segir að það geti ekki klikkað að gefa fallegt úr. „Fallegt úr er gjöf sem hittir alltaf beint í mark hjá öllum herramönnum.
Hjá Michelsen á Hafnartorgi og í Kringlunni færð þú hágæða úr frá merkjum eins og Balmain, Tissot, Longines, Tag heuer, Gucci og fl.“
Gummi segir leggur til að gefa herranum sem á allt hlýja og stílhreina úlpu. Til að mynda frá Burberry.
„Þetta eru fallegustu glös sem ég hef séð,“ segir Gummi um Zalto glösin sem fást hjá RVK design.
„Ég mæli. með að gefa herranum gott rakakrem og serum frá Mádara,“ segir Gummi en þau fást í Lyfju og eru sérstaklega hönnuð fyrir skandinavíska húð
Gummi mælir með 100 prósent náttúrulegum koddum sem fást hjá Heimili og hugmyndir
„Góð rauðvínsflaska klikkar ekki fyrir herramenn. Ég mæli með að kaupa flösku sem þarf að geyma í nokkur ár. Solaia og Tignanello eru snilldar kaup í slíkt.“
„Ég mæli með að kaupa stóran trefil í grænum tónum,“ segir Gummi. „Acne eru með mikið úrval af stórum, fallegum og affordable teflum. Einnig eru Burberry, Fendi og Balenciaga með stóra og geggjaða trefla.“
„Ég mæli með þessum fallegu sexí inniskóm frá ítalska merkinu Santoni“
„Allir karlmenn þurfa fallegt og tímalaust peningaveski,“ segir Gummi. Hann mælir með einu slíku frá merkinu YSL en einnig séu til falleg veski frá Tom Ford, Bottega Vaneta, Gucci og fleirum.
„Ég mæli með þessu belti frá Bottega VVeneta. Með dýrari beltum en klárlega lífstíðareign“
„Ég mæli með þessu merki frá AMI en einnig er sniðugt að skoða Suitsupply, Acne, JLindeberg og fl.“
„Allir karlmenn þurfa fallega og þægilega skó í vetur sem henta vel við flest tækifæri.“ Gummi segir helling til að slíkum skóm en „þessir frá Bottega eru bilaðir“.
„Þessi geggjaði kassi með 3 ítölskum vínum er virkilega falleg gjöf fyrir þann sem á allt. Fæst hjá drykkur.is“
„Michelsen á Hafnartorgi er með mikið úrval af Gucci skarti“
„Ég mæli með fallegum jakka/frakka fyrir herrann eins og þessi frá Acne“