Hertogaynjan Meghan Markle hafði betur í máli sínu gegn útgefanda Mail on Sunday og hafa dómstólar staðfest fyrri niðurstöðu sína um að fjölmiðillinn hafi brotið gegn friðhelgi einkalífs hertogaynjunnar er þeir birtu persónulegt bréf sem hún ritaði til föður síns.
Málið varðaði rúmlega fimm greinar sem birtu valda kafla úr bréfi sem ætlað var föður hennar, Thomas Markle, einum. Fyrr á árinu komust dómstólar að því að birtingin hafi brotið gegn lögum en útgefandinn áfrýjaði málinu en þeir héldu því fram að bréfið hafi verið ritað gagngert til að um það yrði fjallað í fjölmiðlum til að bæta ímynd Meghan.
Dómari komst að þeirri niðurstöðu að það hefði kannski átt erindi við almenning að birta lítið brot úr umræddu bréfi en Mail on Sunday hafi þó gengið of langt með því að birta helming bréfsins.
Meghan hefur látið frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem hún fagnar niðurstöðunni og segir að málið sé fordæmisgefandi.
„Þetta er ekki bara sigur fyrir mig heldur fyrir alla sem hafa óttast að standa fyrir því sem er rétt. Á meðan þessi sigur er fordæmisgefandi þá skiptir samt mestu máli að við erum nú orðin nægilega hugrökk til að setja þeim fjölmiðlum sem skilyrða fólk til að vera grimmt og græða á lygum og þeim sársauka sem þeir valda, skýr mörk.
Frá fyrsta degi hef ég litið á þetta mál sem baráttu fyrir því sem er rétt. Verjandi hefur litið á það sem leik með engum reglum.
Því lengur sem þeir drógu málið, því meira reyndu þeir að brengla staðreyndir og ráðskast með almenning (jafnvel við áfrýjunina sjálfa) og gerðu þetta einfalda mál ótrúlega afmyndað til að reyna að framleiða fleiri fyrirsagnir og selja fleiri blöð – viðskiptamódel sem verðlaunar óreiðu frekar en sannleikann.
Á þeim þremur árum síðan málið hófst hef ég verið þolinmóð frammi fyrir blekkingum, ógnunum og rætnum árásum.
Í dag dæmdu dómstólar mér í vil – aftur – og slógu því á föstu að The Mail on Sunday, í eigu Jonathan Rothermere lávarðs, hafi brotið lögin. „