fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Adele rifjar upp augnablikið þegar hún vissi að hjónabandið væri búið

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 16. nóvember 2021 09:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Adele rifjar upp augnablikið þegar hún vissi að hjónabandi hennar og Simon Konecki væri búið. Söngkonan settist niður með sjónvarpstjörnunni Opruh Winfrey fyrir þátt CBS, Adele One Night Only.

Þær fóru um víðan völl í viðtalinu. Adele ræddi um skilnaðinn og sagði frá því þegar hún áttaði sig á því að hún væri „óhamingjusöm“ í hjónabandinu.

Sjá einnig: Adele tjáir sig í fyrsta sinn um þyngdartapið – Blæs á kjaftasögurnar

Hún segir að hún hefði verið ákveðin að láta sambandið virka. „Ég hef verið með kjarnafjölskyldur á heilanum allt mitt líf því ég kom aldrei frá slíkri. Það eru kjarnafjölskyldur í öllum þessum myndum og bókum sem maður elst upp við og manni finnst eins og þetta ætti að vera þannig. Ég bara, frá unga aldri, lofaði mér sjálfri að þegar ég myndi eignast börn þá myndum við vera saman. Að við myndum verða ein heild og ég reyndi það í mjög langan tíma,“ sagði hún.

Adele og Simon. Mynd/Getty

Adele og Simon byrjuðu saman 2011. Þau eignuðust soninn Angelo í október 2012. Árið 2018 gengu þau í það heilaga og tilkynntu um skilnað sinn ári síðar.

„Ég var bara svo vonsvikin fyrir hönd sonar míns. Ég var svo vonsvikin út í mig sjálfa. Ég hélt að ég myndi hætta að fylgja þessum ansans mynstrum alltaf hreint,“ segir hún.

Adele rifjar upp augnablikið þegar hún vissi að hjónabandið væri búið. Hún var að tala við vini sína. „Við vorum að svara spurningum úr einhverju tímariti og ein spurningin var: „Hvað er eitthvað sem engum myndi detta í hug um þig?“ Og ég svaraði fyrir framan þrjá vini mína: „Ég er ekki hamingjusöm. Ég er ekki að lifa lífinu.“ Og ég mundi eftir lagatexta af 25 plötunni sem er. „Ég vil lifa en ekki bara lifa af/I want to live and not just survive.“ Ég klárlega tengdi við það. Og það var þá sem ég viðurkenndi fyrir vinum mínum, sem héldu að ég væri mjög hamingjusöm, að ég væri í raun mjög óhamingjusöm og þau voru öll agndofa.“

Það eru komnir næstum átta mánuðir síðan Adele og Simon gengu frá skilnaðinum. Hún er nú í sambandi með íþróttaumboðsmanninum Rich Paul. Nýja platan hennar, 30, kemur út á föstudaginn en það eru komin sex ár síðan hún gaf síðast út plötu og það er óhætt að segja að aðdáendur séu að farast úr spenningi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla