fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Gomma af kynlífstækjum á leið til Íslands fyrir jólin – 10 tonn komin og önnur 10 á leiðinni

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 5. október 2021 19:00

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi Blush.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

10 tonn af kynlífleiktækjum og kynlífsjóladagatölum eru komin til landsins og önnur 10 tonn eru á leiðinni en þessi samtals 20 tonn eru öll á leiðinni í eina og sömu kynlífstækjaverslunina, Blush. Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi Blush, ræddi við Loga Bergmann og Sigga Gunnars um jólavertíðina í Síðdegisþættinum á K100 í gær.

„Við höfum svona hægt og rólega bætt við okkur. Þetta eru náttúrlega jóladagatölin. Það er orðið þekkt hér á landi hvað Blush-jóladagatölin eru vinsæl og þau seljast alltaf upp löngu fyrir tímann,“ segir Gerður.

Hún segir þá að einhverjir gætu haldið að það væri fullsnemmt að byrja að selja jóladagatöl í október. „En það hefur bara sýnt sig síðustu árin að því fyrr sem við byrjum því líklegra er að við náum að fá síðustu sendinguna á réttum tíma því við búum á eyju. Það er vandamál og sérstaklega núna í „kóvitinu“. Það er búinn að vera svo mikill gámaskortur.“

Eflaust velta margir því fyrir sér hversu mörg dagatöl eru í þessum 20 tonnum og Gerður svarar því. „7.000 dagatöl og við erum búin að fá fyrstu 10 tonnin og vonandi koma næstu 10 tonn um miðjan október til okkar. Við gátum náttúrulega ekki tekið á móti þessu öllu því við blokkeruðum umferð á Dalveginum þegar þetta kom. Þannig við tókum bara einn gám í einu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Í gær

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 2 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Alda vann til verðlauna annað árið í röð

Alda vann til verðlauna annað árið í röð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kryddpíurnar með endurkomu í rosalegu fimmtugsafmæli Victoriu Beckham

Kryddpíurnar með endurkomu í rosalegu fimmtugsafmæli Victoriu Beckham
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“