Ásta Halldóra Styff Óladóttir varð bráðkvödd að heimili sínu þann 9. desember 2020, aðeins 48 ára gömul. Ásta lætur eftir sig fjögur börn á aldrinum 18 til 29 ára og tvö barnabörn (sjá vef Mannlífs).
Að sögn Sigurðar Styff, bróður Ástu, þjáðist hún af sykursýki á háu stigi auk þess að vera veik fyrir hjarta, en sambland af þessu tvennu var dánarorsök. Þrátt fyrir viðkvæmt heilsufar Ástu kom andlát hennar ættingjum hennar í opna skjöldu og er mikið áfall.
Auk barna sinna og barnabarna lætur Ásta eftir sig tvo bræður, Sigurð og Gísla, og tvær eldri hálfsystur, Helgu Ástu og Sigríði.
Styff ættarnafnið er norskt en þar á ættin merka sögu. Má segja að Ásta hafi bæði átt ættir að rekja til kóngafólks og hermanna sem börðust gegn Þjóðverjum í síðari heimstyrjöldinni í aðdraganda hernáms Þjóðverja þar.
Útför Ástu var frá Fossvogskirkju á föstudag, henni var streymt og má sjá myndband hér fyrir neðan. Þar fer prestur yfir ævi Ástu og hefst sá hluti um það bil klukkustund inn í útsendinguna.
Vinkona Ástu, Rósa Björk, hefur stofnað styrktarreikning fyrir börn Ástu undir nafninu Söfnunarreikningur Ástu Halldóru. Reikningsupplýsingar eru hér að neðan.
Reikningur: 0511-14-006087
Kennitala: 230972 4789