fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Kristin OnlyFans-stjarna segist fara í trekant með eiginmanni sínum og Guði

Fókus
Fimmtudaginn 30. september 2021 22:00

Nita Marie. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nita Marie er 45 ára kristin móðir og eiginkona frá frá Colarado í Bandaríkjunum. Hún starfrækir OnlyFans-síðu þar sem hún selur erótískt efni og segir að það sé það sem „Guð vill að ég geri.“

Í nýlegri umfjöllun á LadBible segir Nita frá því að hún fer reglulega í trekant með eiginmanni sínum og Guði og hún segir það „besta kynlíf sem ég hef stundað.“

Nita segist stundum bjóða Guði að taka þátt í kynlífi þeirra hjóna, stundum veit eiginmaður hennar ekki að því en hún segir að honum er hvort sem er sama.

Hún segist „gera það með Guði“ allavega tvisvar í viku. Hún segir hann þó aldrei vera „líkamlega“ til staðar en hún finnur „greinilega“ fyrir honum „andlega.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Nita Marie (@nitamariecoaching)

„Þegar þú býður Guði að vera með í kynlífi þá ertu að breyta því úr einhverju líkamlegu í eitthvað andlegt og heilagt,“ segir hún.

„Ég hef verið að bjóða honum að taka þátt í kynlífi með mér og eiginmanni mínum frá því að við kynntumst. Það er ekkert meira fullnægjandi en að upplifa ást Guðs á meðan þú veitir maka þínum ánægju.“

Nita er tveggja barna móðir og var með rúmlega milljón fylgjendur á Instagram áður en samfélagsmiðillinn lokaði síðu hennar fyrir að deila of djörfu efni.

„Allir ættu að prófa að bjóða Guð velkominn þegar þeir njóta ásta, allavega einu sinni. Þú ert að gefa þér færi á að upplifa himnaríki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki