Kinsey Wolanski, sem er áhrifavaldur þekkt fyrir að hlaupa fáklædd á stóra íþróttaleiki, er stödd á Íslandi þessa stundina. Það má sjá í Instagram–story hjá hennar, en hún er með hátt í fjórar miljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún sækir Ísland, en hún hefur reglulega komið hingað til lands á síðustu árum, og hefur verið titluð í fjölmiðlum sem fáklæddi Íslandsvinurinn. Miðað við hvernig hún greinir frá á samfélagsmiðlunum sínum er ást hennar gagnvart klakanum mikil, ef marka má færslu frá einni heimsókn sinni, en þar skrifaði hún: „Ísland, ég ætla aldrei að fara frá þér,“
Líkt og áður segir er Kinsey hvað þekktust fyrir að hlaupa fáklædd á íþróttaleiki, en hún hefur bæði truflað úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fótbolta, og heimsbikarsmótið í skíðum.
Þess má geta að Kinsey Wolanski og athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir followa hvor aðra á Instagram, og það voru fagnaðarfundir þegar hún lét sjá sig á nýopnuðum skemmtistað Birgittu, Bankastræti Club, í gærkvöldi.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndar af Instagrami Kinsey Wolanski:
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram