Ristuð sneið af súrdeigsbrauði ásamt hleyptu eggi og lárperu kostar 2.990 krónur á ónefndum veitingastað í miðbæ Reykjavíkur. Verðið á þessu ristaða brauði hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlinum Twitter eftir að Björn Leó Brynjarsson, leikskáld og handritshöfundur, deildi mynd af matseðli veitingastaðarins.
Óhætt er að segja að einhverjum hafi blöskrað þetta verð á réttinum enda verður það að teljast í hærra lagi. Á öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu má finna svipaðan rétt talsvert ódýrari en algengt verð er í kringum 2.000-2.500 en þó fer verðið á sumum stöðum undir 2.000 krónurnar.
„Sæll ekki furða að maður eigi í vandræðum að kaupa sér íbúð, avókadó vísitalan komin úr böndunum,“ segir Björn í færslunni sem um ræðir og vísar þar í fleyg orð frjálslynda háskólanemans og fyrrum formann Sambands íslenskra framhaldsskólanema, Davíð Snæs Jónssonar. Orðin lét Davíð falla í viðtali við Guðmund Franklín Jónsson á Útvarpi Sögu en þá hafði hann verið tiltölulega nýbúinn að stofna Samtök frjálslyndra háskólanema.
„Ég held satt að segja að það hafi alltaf verið erfitt að eignast íbúð. Fólk þarf bara þá að afþakka ákveðin fríðindi í staðinn, fara í færri utanlandsferðir, ekki vera kannski að drekka latte og borða avókadóbrauð á hverjum degi. Fólk þarf aðeins að hugsa og hagræða hjá sjálfu sér.“
Rithöfundurinn Dagur Hjartarson er á meðal þeirra sem tjá sig undir færslu Björns. Dagur birtir ákaflega skemmtilega athugasemd þar sem hann segist hafa fjárfest í „avókadó-toast bréfum“ og að hann sé búinn að græða á því. „Þetta er ekki svo einfalt mál. Sum okkar hagnast,“ segir Dagur. „Keypti verðtryggð avókadó-toast bréf fyrir þremur árum á 1.990 kr hlutinn. Er að selja í dag til að borga útborgun á mína fyrstu eign.“
Þetta er ekki svo einfalt mál. Sum okkar hagnast. Keypti verðtryggð avókadó-toast bréf fyrir þremur árum á 1990 kr hlutinn. Er að selja í dag til að borga útborgun á mína fyrstu eign.
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) June 21, 2021