fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Ástæðan fyrir því að móðir byrjaði að framleiða klám

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 16. júní 2021 20:30

Erika Lust á tökustað klámmyndar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erika Lust er sænskur handritahöfundur, leikstjóri og framleiðandi á feminísku klámi. Hún segist hafa byrjað að framleiða klám því henni þótti „erfitt“ að sjá konur haga sér eins og „tæki“ fyrir kynferðislega ánægju karla.

Erika hefur unnið til verðlauna fyrir kvenlægu klámmyndir sínar sem eru yfir 250 talsins. Hún stofnaði framleiðslufyrirtækið Lust Films því hún var komin með nóg af birtingarmynd kynlífs í hefðbundnu klámi. Hún rifjar upp þegar hún horfði fyrst á klám þegar hún var nemandi við Lund háskólann í Svíþjóð. Hún var fyrir miklum vonbrigðum vegna þess hversu mikið var einblínt á ánægju karlsins frekar en konunnar.

„Frekar en að þetta væri ánægjuleg stund þá átti ég í erfiðleikum,“ sagði Erika í nýlegu viðtali við Glamour.

„Mér fannst klámið snúast um þarfir og ánægju mannsins og konan var aðeins tæki fyrir hann til að fá það.“

Erika er tveggja barna móðir og býr í Barcelona. Hún segist vonast til að myndirnar hennar muni ekki aðeins gera kynferðislega ánægju kvenna sjálfsagða heldur einnig breyta því að fólk horfi á karlmenn í klámi sem „kynlífsmaskínur.“

Kynferðislega frjálsir jafningjar

Erika hefur unnið til fjölda verðlauna og er örugglega hvað þekktust fyrir XConfessions verkefnið sitt sem kom í klámkvikmyndahús árið 2013.

Í hverjum mánuði velur hún tvær sögur eða fantasíur úr fjölda nafnlausra ábendinga sem hún fær í gegnum vefsíðu sína. Hún breytir þeim síðan í erótískar myndir.

Erika lýsir myndum sínum sem „kynlífs-jákvæðum“ (e. sex-positive) og sagði í samtali vði Femail árið 2015 að hennar meginmarkmið væri að sýna bæði karla og konur sem „kynferðislega frjálsa jafningja.“

Þú getur lesið viðtalið við Eriku í heild sinni á vefsíðu Glamour.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Í gær

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla