Richelle ‚Rara‘ Knupper, fyrirsæta, segir frá þeirri vandræðalegu lífsreynslu þegar gamall kennari hennar úr framhaldsskóla byrjaði að fylgja henni á OnlyFans. Hún greinir frá þessu í myndbandi á TikTok.
OnlyFans hefur verið talsvert til umræðu upp á síðkastið. Síðan gerir notendum kleift að selja efni sitt til áskrifenda gegn mánaðarlegu gjaldi. Það er allur gangur á því hvers konar efni er þar inni, en nekt og annars konar erótískt myndefni er lang vinsælast.
Richelle selur myndir og myndbönd af sér í nærfötum og djörfum klæðnaði. Hún tók eftir því að karlmaður sem var kennari hennar í framhaldsskóla væri orðinn áskrifandi og ekki nóg með það þá sendi hann henni skilaboð og sagðist „alltaf hafa vitað“ að hún „væri einstök.“
Richelle viðurkennir að þetta hefði verið mjög óþægilegt. Hún sagði frá þessu á TikTok og hefur fjöldi netverja hvatt hana til að láta skólann vita af framferði mannsins.
„Segðu skólanum. Stjórnendur ættu að vita að hann gæti verið að horfa svona á framhaldsskólastelpur. Þeir ættu allavega að vera að fylgjast með honum,“ segir einn netverji.
View this post on Instagram