Hrafnkell Birgisson hefur hannað drykkjarílát úr gleri sem vísar til drykkjarhorna í fornöld. Gripurinn ber heitið Glasið og það er fyrirtækið Dwarfware sem nú hefur sett það á markað í tilefni þorrans.
Í fréttatilkynningu frá Dwarfware segir:
„Hönnuður glassins er Hrafnkell Birgisson sem hefur orðspor fyrir sögu- og menningartengda hönnun þar sem hann hefur endurvakið notkun á hráefni og handverki í ólíkum verkefnum.
Fáir íslenskir hönnuðir hafa skapað nýjung og sérstöðu með hönnun á drykkjaríláti úr gleri. Okkar mat er að Hrafnkeli hafi tekist það með „Glasinu”.
Glasið er handgert í Póllandi og vísar til drykkjarhorna forfeðranna. Lögun glassins gerir það að verkum að það liggur sérstaklega vel í hendi.
Í hinum forn norræna heimi voru dýrahorn til margra nota þó mest til drykkju. Dwarfware hefur fært hornin í nútímabúning í formi handgerðs drykkjarglass.
Við hönnunina á „Glasinu“ skorar Hrafnkell á handverk glerblásarans með einföldu en ósamhverfu formi sbr. Savoy vasa Alvar Aalto frá 1936. Hrafnkell vann mánuðum saman með
glerblásurunum í Krosno þar til að þeim tókst að framkalla þessa lögun án nokkurra sýnilegra spora frá samskeytum framleiðslumótanna.
Glösin fást einnig með útvöldum áprentuðum versum úr Hávamálum. Mörg vers í Hávamálum lýsa drykkjusiðum manna, lífssýn, atferli og vísa þeim veginn.“
Sjá nánar: https://www.dwarf-ware.com/glasi