Kvikmyndahátíðin RVK Feminist Film Festival hefur staðið yfir um helgina og lýkur henni í kvöld, sunnudagskvöld. Myndir hátíðarinnar eru eingöngu sýndar á vefsíðu hátíðarinnar.
Þessi alþjóðlega kvikmyndahátíð hefur það markmið að kynna konur í kvikmyndagerð en meðal íslenskra verka sem þarna eru sýnd er Stuttmyndin Hvar er draumurinn? sem ber á ensku titilinn Is This My Life? Myndin er byggð á sönnum sögum úr undirheimum Íslands. Má geta þess að lokalagið í myndinni er samnefnt lag hljómsveitarinnar Sálin hans Jóns mín en í flutningi Stálsins, sem er sambland af Dimmu og Skálmöld.
Höfundar myndarinnar eru Jokka G. Birnudóttir, Pétur Guðjónsson og Úlfhildur Örnólfsdóttir en myndina má nálgast hér: Is This My Life « RVK Fem Film Fest
Viðtalið við höfundana má sjá í spilaranum hér fyrir neðan:
Í viðtali hér að neðan segir Jokka einnig frá öðru verkefni, sem er teiknimyndaútgáfa af stuttmynd sem hún og Pétur Guðjónsson gerðu í minningu drengs sem svipti sig lífi á geðdeild árið 2012. Upprunalega myndin er sýnd á hátíðinni.
https://www.youtube.com/watch?v=IKIWmG_Quvk&feature=youtu.be