fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

María Krista útbjó draumkennt barnaherbergi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 26. september 2020 13:30

T.h. María Krista. Mynd/Anton Brink. T.v.: Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Krista tók barnaherbergi í gegn og útkoman er ótrúleg. Hún málaði falleg fjöll á veggina og skreytti þau með límmiðum. Himnasængina útbjó hún sjálf fyrir um eitt þúsund krónur.

María Krista Hreiðarsdóttir er grafískur hönnuður og heldur úti vinsælu heimasíðunni mariakrista.com þar sem hún leggur áherslu á ketó- og lágkolvetnamataræði. Hún tók barnaherbergi Ölmu, dótturdóttur sinnar, í gegn á dögunum.

„Dóttir mín og fjölskylda hennar voru að flytja heim frá Danmörku og Alma hefur aldrei átt eigið herbergi. Það var allt málað hvítt, engir litir og frekar kuldalegt. Ég fékk að skipta mér af og byrjaði að mála einn vegg gráan og svo langaði okkur að gera fjöll, en ekki þessi týpísku fjöll. Ég gerði skapalón og málaði með prufum frá Slippfélaginu,“ segir hún.

Alma var alsæl með útkomuna. Aðsend mynd.

Framkvæmdirnar tóku í heildina um tvo daga og var kostnaðurinn einnig í lágmarki. „Það var ekki mikill kostnaður. Prufurnar kosta lítið og filmurnar einnig. Þetta var kannski um tuttugu þúsund krónur í heildina, ekki alveg viss. Þetta er ekkert puntuherbergi, það má alveg leika sér og rústa því að vild. Það er líka auðvelt að taka til í því. Hún er líka dugleg að taka til, vill hafa hreint í kringum sig.“

HIMNASÆNGIN

„Ég gerði himnasængina sjálf. Hún er úr gardínu frá Rúmfatalagernum, sem kostaði um þúsund kall. Ég setti hana á járnhring úr Föndurbúðinni og svo á krók í loftið. Þetta er bara upp á punt, hún er ekki að nota þetta mikið.“

ELDHÚSIÐ

Barnaeldhúsið er úr IKEA og var smá loftbelgjaþema í herberginu. Á einum veggnum er mynd frá Bergrúnu Írisi af loftbelg.

DÚKKURÚM

„Dúkkurúmið fengum við hjá Sorpu og máluðum það bleikt.“

HILLAN

„Hillurnar eru úr IKEA, heita Svalnäs. Við vorum með þær í búðinni okkar, Systur og makar. Við ákváðum að hafa þær svona neðarlega svo hún gæti notað þetta sem skrifborð.“

BÓKAHILLA

„Hún er frekar mikill bókaormur þannig að við settum hilluna fyrir ofan rúmið. Ég framleiði þessar kanínuhillur, þær fást á kristadesign.is.“

STAFRÓFSPLAKAT

María Krista hannar og selur stafrófsplakatið. Ef þú skoðar það gaumgæfilega sérðu að á eina fígúruna vantar hár, aðra vantar einn útlim, þær eru fjölbreyttar eins og mannflóran.

LÍMMIÐAR

„Svo bjó ég til límmiða hjá Dekal filmum. Ég teiknaði upp mynstur og bað hana um að skera út límmiða og skreytti svo fjöllin með því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar