Ofurfyrirsætan Gigi Hadid og söngvarinn Zayn Malik eignuðust stúlku í gærkvöldi. Zayn greindi frá fregnunum á samfélagsmiðlum.
Hann sagði stúlkuna vera heilbrigða og fallega. „Það er ómögulegt að reyna að útskýra hvernig mér líður akkúrat núna,“ segir hann.
https://www.instagram.com/p/CFgP88Ml0NF/
Gigi og Zayn byrjuðu að hittast árið 2015. Þau hættu saman í mars 2018 og byrjuðu aftur saman stuttu seinna. Þau hættu aftur saman í janúar 2019 en tóku aftur saman í lok árs 2019. Þau staðfestu samband sitt í febrúar 2020.