Drengurinn heitir Robbie og er fimmtán ára gamall.
„Fyrir ári síðan sagði Robbie mér eitthvað sem engin móðir vill heyra. Hann sagðist hafa kynferðislegar langanir til yngri systkina sinna og annarra barna. Hann sagði að eina ástæðan fyrir því að hann hefði ekki brotið gegn þeim var vegna þess að þau myndu segja frá. En hann sagði einnig að ef hann hefði tækifæri til myndi hann brjóta gegn þeim og gera það sem þyrfti til að passa að þau myndu ekki segja frá, eins og að setja límband yfir munninn á þeim,“ segir Kristin og þurrkar burt tárin.
„Þegar ég heyrði hann segja þetta var ég hrædd og áhyggjufull. Þetta var yfirþyrmandi og ég var skelfingu lostin.“
Rick, faðir Robbie, segir að játningar sonar síns hafi verið mikið áfall. „Ég vissi ekki hvernig ég átti að takast á við þetta. Ég skil ekki hvaðan þessar langanir koma. Af hverju honum byrjaði skyndilega að líða svona.“
Foreldrarnir gerðu ýmsar varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir að Robbie myndi brjóta gegn systkinum sínum og öðrum börnum.
„Við settum lása á hurðarnar hjá börnunum svo þau gætu læst sig inni á næturnar. Robbie mátti ekki lengur vera eftirlitslaus á heimilinu. Hann var undir eftirliti allan sólarhringinn, annað hvort fylgdist ég eða pabbi hans með honum. Hann mátti ekki lengur umgangast systkini sín eða önnur börn,“ segir Kristin.
Rick segir að Robbie hafi oft komið með honum í vinnuna svo hann gæti verið undir eftirliti.
„En þrátt fyrir allar ráðstafanirnar sem við tókum þá mætti okkur ný áskorun,“ segir hann og Kristin segir frá því sem gerðist.
„Robbie kom heim úr skólanum þennan dag og sagði að ef við myndum ekki útvega honum aðstoð þá myndi hann nauðga einu systkini sínu. Hann sagði að þrátt fyrir að það væru lásar á hurðunum þá myndi hann finna leið til að brjóta gegn þeim.“
Þau sögðust hafa enga aðra kosta völ en að fjarlægja drenginn af heimilinu og fara með hann beint á sjúkrahús. Faðir hans segir að þetta hafi verið mjög erfið ákvörðun.
„Við skildum hann eftir á sjúkrahúsinu og hann hefur ekki komið heim síðan,“ segir Chris.
Robbie hefur verið í meðferð síðastliðið ár og margt skelfilegt komið í ljós síðan þá. „Síðan hann hóf meðferð höfum við lært svo mikið af nýjum hlutum um hann. Ég er mun hræddari núna heldur en áður. Eitt af því sem ég komst að er að Robbie er hrifinn af drengjum sem eru fimm ára eða yngri. Hann sagðist einnig heillast að BDSM og að ofbeldi heillar hann,“ segir hann.
Robbie játaði einnig að hafa þegar brotið gegn tveimur ungum stúlkum. Kristin er sjálf þolandi kynferðisofbeldi og deildi upplifun sinni með Robbie í von um að það myndi hafa áhrif á hann. En hún segir að Robbie telur sín fórnarlömb muni „komast yfir þetta.“