Rapparinn Cardi B svaraði fyrir sig á Twitter með því að deila nektarmynd af Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna. Repúblikaninn DeAnna Lorraine sagði að Bandaríkin þyrftu færri konur eins og Cardi B og fleiri konur eins og Melaniu Trump.
Cardi B gaf nýlega út lagið WAP ásamt Megan Thee Stallion. WAP stendur fyrir „Wet Ass Pussy“ og hefur vakið mikla athygli fyrir erótískan og klámfenginn texta en einnig fyrir að vera valdeflandi fyrir konur.
„Þetta lag er í rauninni tilraun til þess að endurheimta kynferðislega löngun kvenna – frá sjónarhorni þeirra,“ sagði Anthony Fantano, einn vinsælasti tónlistargagnrýnandi alnetsins, um lagið. WAP er aðra vikuna í röð efst á topplista Billboard og hefur tónlistarmyndbandið fengið yfir 142 milljón áhorf á YouTube.
Repúblikaninn DeAnna Lorraine deildi færslu á Twitter og sagði að Bandaríkin þyrftu fleiri konur eins og Melaniu Trump og færri konur eins og Cardi B. DeAnna Lorraine bauð sig fram í síðustu kosningum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings en tapaði fyrir Demókratanum Nancy Pelosi.
Cardi B svaraði tístinu og sagði: „Var hún ekki vön að selja alla þessa WAP?“
DeAnna svaraði og sagði: „Nei það er algjör lygi. Það sem er ekki lygi er að þú ert að eyðileggja yngri kynslóð Bandaríkjanna með lagatextum þínum og ættir að skammast þín.“
No, that’s a total & complete lie. What’s not a lie is that you are absolutely destroying America’s youth with your lyrics and should be ashamed of yourself.
— DeAnna Lorraine 🇺🇸 (@DeAnna4Congress) August 26, 2020
Cardi B deildi síðan nektarmynd af Melaniu Trump máli sínu til stuðnings.
This pic giving me “ yea you fuckin wit some wet ass pussy “ vibes …just sayin🤷🏽♀️ https://t.co/ahgIf96S6a pic.twitter.com/3DFhh7AY2h
— iamcardib (@iamcardib) August 26, 2020
DeAnna deildi öðru tísti þar sem hún útlistaði allt sem henni þykir vera að Cardi B, eins og að hún hafi „byrlað karlmönnum ólyfjan og rænt þá þegar hún var strippari, hún rappar um kynfærin sín, spillir ungdómnum“ og hafi sagt yngri kynslóðinni að það sé „í lagi að vera með karlmanni sem heldur framhjá.“
Cardi B:
-drugged & robbed men during her time as a “stripper”.
-raps songs about her genitalia, corrupting our youth.
-her husband cheated on her and she told the youth of America that it’s okay to stay with a cheating man.
…and Joe Biden & Kamala Harris campaign with her!
— DeAnna Lorraine 🇺🇸 (@DeAnna4Congress) August 26, 2020
Cardi B hefur ekki svarað þessu tísti þegar greinin er skrifuð.