fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Ég var alltaf að fresta hlutum því allt yrði betra þegar ég yrði grönn

Erla Hlynsdóttir
Sunnudaginn 2. ágúst 2020 12:25

Elva Björk og Sólrún Ósk. MYND/VALLI

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sálfræðingarnir Elva Björk Ágústsdóttir og Sólrún Ósk Lárusdóttir halda úti hlaðvarpinu Bodkastið þar sem fjallað er um líkamsvirðingu frá öllum sjónarhornum.

Bodkastið er hressandi hlaðvarp í umsjón tveggja sálfræðinga sem er annt um líkamsvirðingu. Þær Elva Björk Ágústsdóttir og Sólrún Ósk Lárusdóttir segja hlaðvarpið „líkamsvirðingarvænt“ en þar fjalla þær um ýmis málefni, svo sem líkamsmynd og fitufordóma.

Í fjórða og nýjasta þættinum er fjallað um líkamsvirðingu og kynlíf. Þá fengu þær Sólrún Ósk og Elva Björk sinn fyrsta gest, kynfræðinginn Indíönu Rós Ægisdóttur, sem meðal annars lét þessi fleygu orð falla: „Þú lærir ekki að keyra með því að horfa á The fast and the furious, alveg eins og þú lærir ekki að stunda kynlíf með því að horfa á klám.“

En hvað er eiginlega líkamsvirðing?

Elva: „Líkamsvirðing er mannréttindayfirlýsing sem felur það í sér að allir líkamar eigi rétt á virðingu og góðri umönnun. Reynt er að stuðla að virðingu fyrir fjölbreytileika holdafars, jákvæðri líkamsmynd og heilsueflingu óháð holdafari. Líkamsvirðing gengur einnig út á það að vinna gegn útlitsdýrkun og fitufordómum í samfélaginu. Líkamsvirðing felur einnig í sér að vilja búa til samfélag þar sem allir líkamar eru velkomnir og heilsuefling snúist um vellíðan og umhyggju gagnvart líkamanum. Við viljum einnig að börn læri að þykja vænt um líkama sinn og beri virðingu fyrir margbreytileikanum.“

Sólrún: „Líkamsvirðing er bæði persónulegt og pólitískt hugtak og snýst um að við komum fram við okkar eigin líkama og annarra af virðingu og við gerum líka kröfu á að samfélagið beri virðingu fyrir fjölbreytileika líkamsgerða. Fólk, og þá sérstaklega konur, eyða ómældum tíma og peningum í að reyna að nálgast þessi fegurðarviðmið, oft árangurslaust, og útlits- og megrunariðnaðurinn græðir á tá og fingri.“

Elva: „Það að gagnrýna, mismuna og niðurlægja fólk vegna útlits er ekkert skylt við líkamsvirðingu. Útlit fólks segir okkur í fyrsta lagi ekkert mjög mikið til um heilsu þeirra eða heilsuhegðun. Og í raun skuldar enginn öðrum það að vera heilsuhraustur. Þannig að heilsuhegðun annarra er í raun ekkert okkar mál.“

Rótgrónir fitufordómar

Sólrún: „Líkamsvirðing snýst alls ekki eingöngu um feitt fólk en vissulega eru fitufordómar eitt af því sem Samtök um líkamsvirðingu berjast gegn. Feitt fólk, þar með talið feit börn, verður fyrir smánun og kerfisbundinni mismunun sem hefur neikvæð áhrif á heilsufar þeirra. Með því að standa vörð um mannréttindi allra líkama halda einhvern veginn sumir að við séum að hvetja til óheilbrigðs lífsstíls sem er auðvitað fjarri lagi. Það að smána og gagnrýna holdafar annarra er yfirleitt ekki til þess fallið að bæta líðan þeirra eða heilsu á nokkurn hátt heldur akkúrat öfugt. En svo má benda á það að útlit og heilsa annarra kemur okkur í rauninni ekkert við. Fitufordómar eru hins vegar mjög rótgrónir og við erum flest með þá, hvort sem við erum sjálf feit eða ekki, við sjáum svo víða þessi skilaboð um hvað það sé hræðilegt að vera feitur og staðalmyndir um feitt fólk, það mætti stundum halda að það væri ekkert verra í heiminum.“

Elva og Sólrún eru báðar í stjórn Samtaka um líkamsvirðingu, og stofnaði Elva raunar samtökin ásamt sálfræðingnum Sigrúnu Daníelsdóttur á sínum tíma. Þeim fannst síðan góð hugmynd að koma boðskapnum á framfæri með hlaðvarpi. Þær reyndu lengi að finna hið fullkomna nafn en það var síðan maðurinn hennar Elvu sem stakk upp á Bodkastinu. „Hann er þekktur fyrir pabbabrandarana sína,“ segir Elva en Sólrún bætir við: „Það er reyndar til hlaðvarp á ensku sem heitir The Bodcast en það eru held ég aðallega viðtöl við einkaþjálfara svo ég held að það sé engin hætta á að fólk rugli þessu saman.“ Báðar hafa þær persónulega reynslu sem leiddi þær á brautir líkamsvirðingarvinnu.

Var endalaust í megrun

Elva: „Ég fór frá því að vera endalaust í megrun og fór frá því að refsa líkama mínum og líta á hann sem óvin yfir í að ná ákveðinni sátt við útlit mitt og reyna af fremsta megni að hlusta á þarfir líkamans og hlúa að honum. Ég hætti að hreyfa mig til að brenna hitaeiningum og léttast, sem venjulega leiddi til þess að ég gafst upp þegar árangur lét á sér standa eða staðnaði, yfir í að hreyfa mig heilsunnar vegna. Ég hreyfi mig til að fá útrás, til að styrkja líkamann og fá meira þol svo ég get hlaupið á eftir börnum mínum, gengið á fjöll með manninum mínum og skokkað. Þegar hugarfarið breytist gagnvart líkamanum og færist yfir í líkamsvirðingarvænna horf þá breytist öll heilsuhegðunin líka.“

Sólrún: „Fyrir mér var þetta ákveðin frelsun að kynnast þessari baráttu og þessum vinkli, að það væri hægt að vinna að bættri heilsu án þess að einblína á holdafar. Hafandi verið í eilífri megrun frá unglingsaldri og rokkað í þyngd, aðallega upp á við, og alltaf var ég að fresta hlutum og sjá fyrir mér að allt yrði betra þegar ég yrði grönn. Ég er enn þá að vinna í því að ná sátt við líkama minn og skal alveg viðurkenna að ég væri til í að hann liti öðruvísi út. En útlitið skiptir mig minna máli núna en áður og ég finn að eftir að ég fór til dæmis að finna mér fjölbreyttari fyrirmyndir á samfélagsmiðlum ber ég mig minna saman við aðra.“

Facebook Bodkastið – líkamsvirðingarvænt hlaðvarp

Instagram @bodkastid

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“