fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Brynja bakaði sígarettustubba-afmælisköku – „Nailed it!“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 15. ágúst 2020 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég verð seint kölluð geggjaður bakari, en mér tókst þó að henda í þessa virkilega ógirnilegu afmælisköku,“ skrifar Brynja Ásta Magnúsdóttir, eða Bimma eins og hún er gjarnan kölluð.

Bimma segist hafa fengið hugmynduna vegna þess hve algengt er að sjá sígarettustubba um allt. Má því segja að sígarettustubbakakan er því hennar framlag til vitundarvakningar um þau mál. „Ég hef stundum verið að baka eitthvað í gríni og ágætt að minna fólk á að nota öskubakka/stubbahús,“ segir Bimma.

Bimma fagnar um þessar mundir 24 ára afmælis síns, og er sígarettustubbakakan því hvorki meira né minna en afmælissígarettustubbakaka. „Á næsta ári á ég stórafmæli, og þá baka ég mögulega flottari köku,“ sagði afmælisbarnið. Í ljósi þjóðfélagsaðstæðna þá verður bara lítið grillpartý heima hjá Bimmu í kvöld fyrir þá nánustu.

Bimma segist alls ekki vera mikill bakari, heldur „bara áhugamanneskja um grínkökur.“ „Ég elska til dæmis þættina „nailed it“ þar sem ólærðir bakarar þurfa að herma eftir kökum sem alvöru bakarar baka.“ Lætur hún einmitt myllumerkið #nailedit fylgja með í færslu sinni.

Sjá má mynd af kökunni hér að neðan og ljóst að þrátt fyrir hófsemi Brynju er henni margt til listanna lagt og ljóst að vandað hefur verið til verks, þó sá er þetta ritar hafi vissulega séð girnilegri kökur.

mynd/aðsend

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki