Tónlistarkonan Dagbjört Rúriksdóttir, eða Día, gaf út tónlistarmyndband við lagið „Baby, I’m Sick“ á dögunum. Hún segist hafa orðið fyrir einelti og árásum á netinu þegar að hún deildi bút úr myndbandinu á Instagram. Umræddar árásir hafi aðallega átt sér stað vegna hárs Dagbjartar, sem var með fastar fléttur.
Fastar fléttur líkt og þær sem að Dagbjört var með í myndbandinu hafa verið umdeildar á seinustu árum. Hárgreiðslan á sér langa sögu, en hvítir einstaklingar sem að hafa skartað fléttunum hafa verið ásakaðir um að misnota menningu annara (e. Cultural appropriation). Yfirleitt er rætt um menningarstuld þegar að einstaklingar í forréttindastöðu nýta sér menningu þeirra sem ekki eru í forréttindastöðu án þess að átta sig á þeirri menningarlegu vigt sem tiltekið fyrirbæri hefur.
„Ég kom alveg af fjöllum þegar áreitið og gagnrýnið kom varðandi flétturnar.“
Segir Dagbjört sem greinir frá því að einstaklingar hafi deilt myndum af sér með föstu flétturnar, ásamt skilaboðum sem henni fannst niðrandi. Hún segist hafa verið kölluð rasisti og að fólk hafi reynt að kúga hana til að birta ekki myndbandið.
Henni finnst ekki rétt að fólk ætli að „banna sér“ að vera með fléttur. Hún segist bera virðingu fyrir menningu annara og að boð og bönn búi til aðskilnað.
Dagbjört segist hafa verið að leika sjálfa sig í öðrum aðstæðum, en í myndbandinu sést hún ræna búð, brjótast inn í sumarhús, og í eltingarleik við lögregluna.
„Ég ber virðingu fyrir sögu fléttanna en í mínum huga var ég bara að leika sjálfa mig í öðrum aðstæðum og ég valdi þessar fjórar föstu fléttur því mér fannst það vera töff lúkk. Meining mín var ekki dýpri en það.
Það að ,,banna mér“ að vera með þessar fléttur vegna húðlitar míns er skref í ranga átt. Við ættum að huga að sameiningu og ást en þessi hugsun gerir ekki annað en að skapa frekari aðskilnað.“
Hér að neðan má sjá myndband Dagbjartar við lagið „Baby, I’m Sick“: