Snapparinn Reynir Bergmann og Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir eru hætt saman. Reynir segir sjálfur frá þessu á Snapchat.
„VIð eru bara vinir, það er ekki neitt slæmt. Við erum vinir, það gerðist ekkert,“ sagði Reynir á Snapchat.
Reynir og Sólveig Ýr reka saman fyrirtækið Park and Fly og Vefjan.
Reynir bað Sólveigar á Tenerife í byrjun árs 2019. Þau eiga saman þrjár dætur. Sú yngsta er 17 mánaða og sýndi Reynir frá fæðingunni í beinni á Snapchat. Þau hættu saman í lok árs 2019 en tóku aftur saman í byrjun 2020.