fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Vinsælustu fegrunaraðgerðirnar á Íslandi í dag

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 28. júní 2020 11:30

Hannes Sigurjónsson lýtalæknir. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fegrunaraðgerðir eru eins vinsælar og þær eru umdeildar. Það er misjafnt hverju sinni, hvaða aðgerðir eru vinsælastar. Hannes Sigurjónsson lýtalæknir starfar á lýtalækningastöðinni Dea Medica í Glæsibæ. Þar eru gerðar allar tegundir lýta- og fegrunaraðgerða. Hannes var í sérnámi á Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi og var búsettur þar í níu ár, en er nú alfarið fluttur til Íslands. Hannes segir að um 20 prósent þeirra sem leita til hans séu karlmenn.

Þróun síðustu ár

Aðspurður hvort það hafi orðið einhver þróun varðandi vinsældir fegrunaraðgerða undanfarin ár svarar Hannes játandi.

„Það hefur verið vinsælt síðastliðin misseri að fjarlægja silíkonpúða og lyfta brjóstunum og/eða gera fitufyllingu. Við fitufyllingu er notað fitusog á svæðum þar sem einstaklingurinn vill losna við fitu. Fitan er síðan unnin á ákveðinn hátt, þar sem blóð og vökvi er skilið frá og fitan brotin niður í smærri einingar. Henni er síðan komið fyrir í brjóstunum með sprautu. Þarna er komin góð leið til að stækka og móta brjóst, en að sjálfsögðu ekki hægt að stækka jafnmikið með fitu, samanborið við ísetningu púða,“ segir hann.

Brjóstastækkanir hafa verið ein vinsælasta aðgerðin og eru það enn. „Konur eru nú meðvitaðri um hvers konar púða og af hvaða tegund lýtalæknar nota. Þær eru upplýstari um kosti og galla ólíkra aðgerðartegunda og púða. Á Dea Medica notum við púða frá framleiðanda sem heitir Motiva. Þeir púðar hafa komið einna best út úr rannsóknum á öryggi og langtímaárangri,“ segir Hannes en ekkert lát er á vinsældum brjóstaaðgerða.

Fylliefni

Fylliefni eru vinsæl í dag og mikið notuð til að bæta upp tap á fyllingu í andliti, sem verður þegar árin færast yfir, að sögn Hannesar. Hann segir það aðallega ungar konur sem sækjast eftir því að stækka og móta varirnar.

„Einnig er hægt að lagfæra ýmis útlitsvandamál með fylliefni, svo sem skekkjur á nefi og ósamræmi milli andlitshelminga. Fylliefni eru yfirleitt úr svokallaðri hýalúronsýru, sem er náttúrulegt efni og fyrirfinnst í húðinni okkar. Hýalúronsýra, kollagen og fita, minnkar svo með aldrinum í andliti og því er gott að eiga möguleikann á því að fylla í á ný,“ segir Hannes.

„Algengasti aldurshópurinn þegar kemur að fylliefnum er á milli 35 og 65 ára. Yngri konur sækjast einnig eftir meðferðum með fylliefnum, en þá eru það sérstaklega varirnar sem sá aldurshópur vill stækka og móta,“ segir hann og bætir við: „Mín tilfinning er sú að meðferð með fylliefnum sé að verða hófstilltari og um leið almennari. „Less is more“ eru til dæmis mín einkunnarorð þegar kemur að fylliefnum og leitast ég eftir að ná náttúrulegri niðurstöðu, þar sem einstaklingurinn lítur vel út og að það sjáist helst ekki að eitthvað hafi verið gert.“

Brazilian butt lift hefur verið afar umdeild. Mynd/Getty

Umdeild aðgerð

Það hafa sumir talað um að brazilian butt lift sé ein hættulegasta fegrunaraðgerð sem völ er á. Þetta er aðgerð þar sem fita er notuð til að fylla í rass og mjaðmir.

„Þessi aðgerð fékk á sig slæmt orð vegna tíðra fylgikvilla, sem aðallega voru vegna þess að ósérhæfðir aðilar voru að framkvæma þessar aðgerðir, það er, ekki lýtalæknar, og jafnvel voru þær framkvæmdar í kjallaraíbúðum erlendis, þar sem iðnaðarsilíkoni eða öðrum efnum var komið fyrir í rassinum. En ef þessi aðgerð er gerð af sérhæfðum lýtalækni á faglegan hátt, við viðurkenndar aðstæður og með viðurkenndum aðferðum, þá er tíðni fylgikvilla ekki hærri en við aðrar algengar fegrunaraðgerðir,“ segir Hannes.

Hann segir að aðgerðin sé ekki meðal algengustu aðgerðanna hér á landi, en hann er mikið spurður um hana. „Þá er mikilvægt að upplýsa einstaklinginn vel um hvernig aðgerðin er framkvæmd, hvaða takmarkanir hún hefur og um hugsanlega fylgikvilla.“

Vinsælustu fegrunaraðgerðirnar í dag

Mynd/Getty

Fitusog

„Fitusog er einnig mjög vinsælt. Sú aðgerð miðar að því að fjarlægja fitu af svæðum þar sem fólk á erfitt með að losna við fitu, jafnvel þó það sé í kjörþyngd, svo sem á maga eða mitti, upphandleggjum eða lærum.“

Mynd/Getty

Bótox

„Bótox til að slaka á vöðum í andliti, í þeim tilgangi að minnka hrukkur.“

Augnlokaaðgerðin

„Augnlokaaðgerð er líklega vinsælasta aðgerðin sem við gerum í staðdeyfingu. Þá er aukahúð fjarlægð og fitupúði sem við erum með undir húðinni minnkaður.“

Mynd/Getty

Svuntuaðgerð

Hannes segir að mikil aukning hafi orðið í aðgerðum sem miða að því að fjarlægja aukahúð eftir þyngdartap. „Þar er svuntuaðgerð vinsælust, þar sem aukahúð er fjarlægð af maga. Þar að auki er kviðveggurinn lagfærður, en hann gliðnar oft í sundur á meðgöngu eða við mikla þyngdaraukningu. Þessi gliðnun veldur því að kviðveggurinn er ekki eins sterkur og hann ætti að vera. Það eitt getur valdið langvarandi bakverkjum. Með aðgerðinni er þetta leiðrétt og höfum við á Karolinska háskólasjúkrahúsinu birt rannsóknir sem styðja það að þessi lagfæring getur bætt bakverki að miklu leyti.“

Húðfjarlæging

„Húðfjarlæging á öðrum svæðum svo sem upphandleggjum og lærum er einnig algeng og á sennilega eftir að aukast í framtíðinni, þar sem vinsældir ýmissa magaminnkunaraðgerða hafa aukist mjög síðastliðin ár,“ segir Hannes.

Mynd/Getty

Brjóstaaðgerðir

„Brjóstaaðgerðir ýmiss konar eru með vinsælustu aðgerðunum sem við lýtalæknar gerum. Svo sem lyfting, minnkun, stækkun með púða og fituflutningur,“ segir Hannes.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“