fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusMatur

Kolagrillað lamb og fyllt naanbrauð að hætti Þóru

Tobba Marinósdóttir
Fimmtudaginn 14. maí 2020 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóra Sigurðardóttir, ritstjóri Matarvefs Mbl. is og gleðibomba, gerir allt með stæl. Hvort sem það er lambalæri eða fagurmótaður líkami. Þóra er ævintýragjörn í eðli sínu enda hefur hún breytt hreysi í höll, rekið veitingastað í tjaldi og búið á Bahamaeyjum, svo fátt eitt sé nefnt. Aðspurð um hvað hún myndi aldrei borða svarar hún: „heiladingul, augu og eistu… og bara innmat almennt. Annars er ég fremur opin fyrir flestu. Nema skordýrum. Þó ég hafi meira að segja borðað beltisdýr.“ Matarblæti Þóru eru einfalt, sykrað og heiðarlegt. „Kökudeig og -krem. Svo virðist sem bakaraofnar séu algjört aukaatriði í mínu lífi. Ég lagaði meira að segja marengs um daginn og át deigið – segir maður deig? Það var sóttkví og ég átti engin sætindi. Smákökudeig er líka stórkostlegt. Ég veit ekki hvort þetta er vandamál en þetta þykir stórfurðulegt á sumum bæjum. Mér finnst þetta eðlilegt og ég geri alltaf aukadeig fyrir mig. Svona smá alla vega.“

Er satt að þú stefnir á að keppa í fitness? „Það var planið. Mig grunar samt að matarást mín hafi töluvert hamlandi áhrif á frammistöðu mína en það er gott að hafa plan í lífinu og stórar áskoranir. Þegar ég ákvað að byrja loksins að stunda líkamsrækt af alvöru var eins gott að setja markmiðið hátt þannig að fitness varð fyrir valinu, enda veit ég fátt fallegra en vel mótaðan og vöðvamikinn líkama. Ég væri alveg til í að keppa – þó það væri bara öldungamót í litlu héraði í Wales. Skiptir ekki öllu en myndin af mér í bikiníinu með brúnkukremið færi innrömmuð upp á vegg.“

En getur Þóra lagt smjörkreminu og tekið upp grænkálið? „Ég hef reynt en hef takmarkaðan sjálfsaga í mataræði. Ég er samt búin að taka töflufundinn með einkakokkinum og það er búið að setja saman matseðil samkvæmt fyrirmælum einkaþjálfarans. Þannig að þegar sá gállinn er á mér þá gæti ég tekið mataræðið alla leið og það yrði algjör veisla.“ Þú stýrir stærsta matarvef landsins en hefur sagt að þú sért enginn spes kokkur. Hvernig gengur það? „Það gengur bara stórkostlega enda elska ég mat og að borða hann. Segja frá honum og öllu sem honum tengist. Ég hef átt og rekið veitingastaði og flestir af bestu vinum mínum eru kokkar. Svo bý ég svo vel að þurfa aldrei að elda heima hjá mér. Ég geri hins vegar frábærar pítsur og yfirliðsvaldandi bearnaisesósu. Ég masteraði þetta tvennt og hef haldið mig við það. Það má því segja að ég sé með mjög mikla sérhæfingu í matargerð. Nánast eins og skurðlæknir sem sérhæfir sig í aðgerðum á ökkla.“

Stórkostleg indversk veisla að hætti Þóru

Ég held að þessi uppskrift komi upphaflega frá vini mínum Sigurði Gíslasyni sem vill svo skemmtilega til að er kokkur. Hér erum við með kolagrillað lamb sem er í miklu uppáhaldi hjá mér og þetta indverska tvist er skemmtilegt.

Kolagrillað lambainnralæri með indversku kryddi og fylltu naanbrauði

800 g lambainnralæri
3 smásaxaðir laukar
3 smásaxaðir hvítlauksgeirar
½ smásaxaður rauður chili
2 msk. smásaxað ferskt engifer
100 ml kókosolía
1 tsk. masalakrydd
1 tsk. malað broddkúmen (cumin)
½ tsk. cayennepipar 2 tsk. salt 1 tsk. svartur pipar

Svitaðu lauk, hvítlauk, engifer og chili í kókosolíu á pönnu í 5 mín.
Bættu öllu kryddinu út í, eldaðu í 2 mín. og kældu.
Skerðu u.þ.b. 1 cm rifur á 10 stöðum í innralærisvöðvanum, nuddaðu
kryddblöndunni duglega í sárin og láttu liggja í 30-60 mín.

Grillaðu lambið í u.þ.b. 20 mín. í heildina. Snúðu á um 2-3 mínútna fresti og gættu þess að hafa ekki of mikinn hita. Eftir grillun er mikilvægt að láta kjötið hvíla í 5 mínútur áður en það er skorið.

Naanbrauð, fyllt með þurrkuðum ávöxtum og hnetum

3 bollar hveiti
1 bolli volgt vatn
2 tsk. ger 1 tsk. sykur 1 tsk. salt 1 bolli hreint jógúrt eða sýrður rjómi
Blandaðu vatni, geri, salti og sykri saman. Settu því næst jógúrt út í og hrærðu saman. Að síðustu er hveitinu blandað saman við og deigið hnoðað. Skiptu deiginu í 4 parta, hnoðaðu kúlur og láttu hefast í hálftíma. Flettu deigið þunnt út.
Fylling 150 g smásaxaðir þurrkaðir ávextir 30 g kókosflögur 50 g saxaðar pistasíuhnetur 50 g kasjúhnetur Kókosolía
Flettu naandeigið út, settu fyllinguna ofan á og brjóttu deigið yfir. Rúllaðu aðeins yfir með kökukefli. Verði ykkur að góðu!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa