Ferðaljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir er trúlofuð kærasta sínum, Leo Alsved. Hún greinir frá þessu á Instagram þar sem hún birtir mynd af Leo biðja um hönd hennar. Ása nýtur mikilla vinsælda á Instagram og er með tæplega 200 þúsund fylgjendur.
Þó svo Ása sé fyrst að greina frá gleðifregnunum núna þá trúlofaði parið sig fyrir mánuði á ferðalagi um Filippseyjar.
„Kvöldið var töfrum líkast. Þetta kom mér alveg á óvart og það var mjög auðvelt að svara; JÁ! Leo, lífið með þér er svo miklu skemmtilegra og ríkt af ævintýrum. Við höfum verið óaðskiljanleg síðan við kynntumst og ég bjóst aldrei við að finna ást eins og þessa,“ skrifar Ása í einlægri og fallegri færslu á Instagram.
Ýttu á örina til hægri til að sjá fleiri myndir frá trúlofuninni á Filippseyjum.
https://www.instagram.com/p/B-kPr_nl8RR/?fbclid=IwAR0yHdYAGij25DW_s-g67eCzlkp1Jna5E0jwGnbvjwrk1BRSGqr3_kSYQjw
Fókus óskar parinu innilega til hamingju.