fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Áhrifavaldar sem hafa opnað sig um jákvæða líkamsímynd

Fókus
Fimmtudaginn 30. apríl 2020 20:30

Myndir: Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umræða um jákvæða líkamsímynd hefur verið umfangsmikil á Íslandi síðustu ár. Jákvæð líkamsímynd snýst um að bera virðingu fyrir líkama sínum og líða vel í eigin skinni.

Jákvæð líkamsímynd hefur verið sérstaklega áberandi á samfélagsmiðlum. Hér er nokkrir íslenskir áhrifavaldar sem hafa opnað sig um líkamsímynd við góðar undirtektir.

Listinn er langt frá því að vera tæmandi, þetta er aðeins brot af því merkilega hlutverki sem þessar konur hafa leikið í baráttunni fyrir bættri líðan og aukinni sjálfsvirðingu.

https://www.instagram.com/p/B-m7vTSD4Kk/

Margrét Gnarr

Einkaþjálfarinn Margrét Gnarr hefur verið mjög opin um baráttu sína við átröskun. Hún hefur verið í bata undanfarin tvö ár og eignaðist sitt fyrsta barn í janúar. Hún birtir reglulega færslur um jákvæða líkamsímynd og hvernig henni líður gagnvart líkama sínum hverju sinni.

„Það er ekki samasemmerki milli þess að léttast og lækna neikvæða líkamsímynd. Ég þarf að minna mig á það í hvert skipti sem ég hugsa um að létta mig,“ skrifaði Margrét í færslu á Instagram fyrr í mánuðinum.

https://www.instagram.com/p/B2PVdfWAMcO/

Ísold Halldórudóttir

Fyrirsætan Ísold Halldórudóttir er ötul baráttukona fyrir líkamsvirðingu. Hún hefur
vakið mikla athygli, bæði hér heima og erlendis. Hún deilir myndum á Instagram
og skrifar oft með texta um bætta líkamsímynd.

„Ég ákvað að vera hávær með líkama mínum, að vera stolt af honum á meðan ég sýni heiminum galla mína, óöryggi mitt, efasemdir mínar, erfiðleika mína og yfirþyrmandi tilfinningu að vilja vera fullkomin. En ég er það […] Ég er fullkomin, því ég er fullkomlega ég sjálf,“ skrifar Ísold á Instagram í september síðastliðnum.

https://www.instagram.com/p/BkaHKK1n1IG/

Lína Birgitta

Athafnakonan Lína Birgitta hefur talað opinberlega um baráttu sína við átröskun. Hún glímdi við lotugræðgi í mörg ár en er í dag heilbrigð. Hún opnaði sig um líkamsímynd sína í einlægri
færslu á Instagram árið 2018.

„Breytt hugarfar gagnvart eigin líkama er lykillinn að því að líða vel í eigin skinni. Í staðinn fyrir að fókusa á það slæma, fókusaðu á það góða og hvað líkaminn gerir þér kleift að gera! Það er líka magnað að pæla í því hvað líkaminn okkar hefur komið okkur í gegnum margt í lífinu!“ skrifaði hún.

https://www.instagram.com/p/B2rtrpogvIE/

Bryndís Líf

Fyrirsætan Bryndís Líf birti myndir af slitförunum sínum og opnaði sig um líkamsímynd í Instagram Story í kjölfarið.

„Mér finnst stundum erfitt að deila myndum af mér þar sem ég er ekki uppstillt. Ég á það til að vera óörugg en ég er að vinna í því að láta þetta hætta að skipta mig máli. Ekki gleyma að við
erum öll eins, við erum öll falleg og við erum öll með magaspik (e. tummy rolls) […]  Samfélagsmiðlar eru ekki raunverulegir. Hættum að bera okkur saman við fólk því í rauninni erum við öll eins.“

https://www.instagram.com/p/B8R1x3kA7Vk/

Erna Hrund

Erna Hrund opnaði sig nýverið um svokallaðan „magabömmer.“ Hún lýsir því sem „tilfinningu sem kemur alltaf reglulega upp í hausinn á mér“.

„Ég er almennt manneskja sem er að springa úr sjálfstrausti allan daginn. Ég ber mig vel, geng um eins og ég eigi heiminn liggur við en þegar maginn kemur út þá vil ég helst týnast. Held þetta verði stanslaus barátta hjá mér sjálfri og mér finnst ég fara fram og tilbaka en ég er bara mannleg og ég veit að ég er minn allra stærsti gagnrýnandi,“ sagði hún.

https://www.instagram.com/p/B_KtSnpjBFj/

Sunneva Einars

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir birti öðruvísi mynd en venjulega á dögunum. Hún sýndi aðra hlið á sér og skrifaði með: „Sjálfsást.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“