Listamaðurinn Ómar Haukson spyr hvort það sé komin veðbanki um hver verður fyrsta fræga manneskjan á Íslandi til að fá kórónuveiruna.
„500 kall á Jónsa í Svörtum fötum,“ segir Ómar á Twitter.
Er kominn veðbanki um hver verður fyrsta selebið að fá Coronavírusinn? 500 kall á Jónsa í Svörtum fötum.
— Omar_O_Hauksson (@Omar_O_Hauksson) March 3, 2020
Nokkrir hafa skrifað við færsluna og varpað fram sinni spá.
„Erpur. Allan daginn Erpur,“ segir Hannes nokkur.
„Siggi Hlö – er með sótspor á við meðalstórt bæjarfélag,“ segir einn netverji.
Annar segir: „Ég ætla að taka langskot og segja Herbert Guðmundsson, hann lítur út fyrir að vera alltaf á Tenerife.“
Það er einnig spáð því að Magnús Scheving, Ingvi Hrafn, Heiðar snyrtir og Ingó Veðurguð verði þeir fyrstu til að smitast af kórónuveirunni.