fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Leifur, níu ára, segir slæmt að eiga afmæli í dag og hlakkar til þess að kórónuhelvítinu ljúki – „Eins og hjá frænku minni sem á afmæli 11. september“

Fókus
Þriðjudaginn 24. mars 2020 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leifur Ottó Þórarinsson, níu ára piltur, átti afmæli í gær og segist hann ekki alls kostar sáttur. Hann skrifar grein sem birtist í Kjarnanum og ljóst er að honum er ekki skemmt. Leifur á ekki langt að sækja rithæfileikana því hann er sonur rithöfundanna Auðar Jónsdóttur og Þórarins Leifssonar. Leifur ber þó höfuðið hátt og horfir á björtu hliðarnar:

„Mér finnst ekki mjög gaman að eiga afmæli akkúrat núna, en samt alveg ágætt. Samt var alveg gott að það voru ekki of miki læti. Ég bauð einum gesti, Kára frænda mínum, í afmælisköku og pizzu. Það var skemmtilegra en ég hélt að það myndi verða að vera bara tveir. Við eigum alltaf eftir að muna eftir þessu skrýtna afmæli. Svo kom pabbi líka í heimsókn og fékk kaffi og pizzu.“

Hann segir það að eiga afmæli í dag ekki ólíkt upplifun frænku sinnar sem á afmæli 11. september. „Við Kári eigum fyndna mynd af okkur saman sem mamma ætlar að stækka og eiga. Ég held að ég eigi alltaf eftir að muna þetta afmæli, það er svo ólíkt hinum afmælunum mínum. Eins og hjá frænku minni sem á afmæli 11. september og man alltaf eftir afmælinu þegar flugvélarnar flugu á turnana því allir voru svo sorgmæddir,“ segir Leifur.

Líkt og fyrr segir þá reynir Leifur að sjá það jákvæða í stöðunni. „Ég fékk allavega bestu gjafirnar sem ég hef fengið í lífinu mínu. Ég fékk fótboltaföt með Valsmerkinu og fótboltatösku. Og Kári frændi gaf mér gerviskalla og spray svo ég gat spreiað hárið mitt bleikt. Og ég gerði það! Ég held að þetta hafi verið eitt besta afmælið, þó að það hafi verið skrýtið.

Að lokum segist Leifur hlakka til þess dags þegar þessu kórónuhelvíti lýkur:„Allir krakkar sem þurfa að fresta að afmælinu sínu geta örugglega haldið risapartí í sumar. Eða í síðasta lagi í haust. Og meira að segja úti í garði ef það verður í sumar og þau eiga garð. Þá er hægt að vera í fótbolta í afmælinu! Eða bara í Hljómskálagarðinum eða einhverjum garði nálægt, ef þau búa ekki í Reykjavík. Það verður fullt af krakkapartíum út um allt um leið og þetta kórónuhelvíti verður búið. Ég hlakka til. Áfram krakkar!“

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki