Eins og flestum Íslendingum er kunnugt þá hefur verið hætt við Eurovision í ár. Daði Freyr ásamt Gagnamagninu vann Söngvakeppnina með laginu Think about Things og átti það að vera framlag okkar Íslendinga í keppnina.
Daði lætur þó Eurovision-leysið ekki stoppa sig í að flytja tónlist. Fyrr í dag spurði Daði fylgjendur sína á Twitter hvaða Eurovision-lag hann ætti að gera ábreiðu af og varð lagið Fuego sem Eleni Foureira flutti fyrir hönd Kýpur.
Hér fyrir neðan má sjá útgáfu Daða af laginu: