Damon Albarn, söngvari, lagahöfundur og forsprakki hljómsveitanna Blur og Gorillaz, heimsótti Alþingi í dag.
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greinir frá þessu á Facebook og birtir mynd af þeim saman.
„Maður fær – sem betur fer – allskonar skemmtilegt fólk í heimsókn til sín í þingið. Heimsfrægar rokkstjörnur eru þó frekar sjaldséðir gestir, en Damon Albarn kom til mín í hádeginu og reyndist áhugasamari og fróðari um Ísland en margir aðrir sem ég þekki,“ skrifar Páll á Facebook.