Grínistinn Björn Bragi Arnarsson var að deila myndbandi af sér syngja „Í síðasta skipti“ eftir Friðrik Dór með breyttum texta. Myndbandið hefur vakið töluverða athygli, um ellefu þúsund manns hafa horft á það síðastliðinn klukkutíma.
Myndbandið er frá uppistandi Björns Braga.
„Ég held að ef við ætlum að vinna Eurovision í ár þá sé núna tíminn til að senda Friðrik Dór. Með Eurovision-lagið hans en með örlítið breyttum texta svona með tilliti til ástandsins í heiminum. En sko í síðasta skipti með pínulítið breyttum texta, þá gæti það hljómað svona,“ segir hann við hlátraköll áhorfenda.
Svona byrjar lagið: „Ég man það svo vel, hvernig lífið var áður en kóróna kom hér, þegar ég gat tekið þéttingsfast í höndina á þér, og snert svo andlitið. Ég man það svo vel.“
Þú getur horft á myndbandið og hlustað á lagið hér að neðan.