Leikarinn og grínistinn Vilhelm Neto er trúlofaður. Sú heppna er Katrine Gregersen Vedel. Parið greindi frá gleðifréttunum á Facebook og greindi Mbl frá þessu fyrr í morgun.
Vilhelm Neto hefur verið áberandi innan grínsenunnar á Íslandi síðastliðin ár. Hann sést reglulega á skjá landsmanna í auglýsingu Íslandsbanka.
Við óskum parinu innilega til hamingju!