fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Einn ástælasti söngvari þjóðarinnar fallinn frá – Valdi ástina fram yfir stóran samning – „Ég er enginn töffari, ég er bara singer“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 29. febrúar 2020 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Bjarnason – betur þekktur sem Raggi Bjarna – var einn ástsælasti söngvari íslensku þjóðarinnar. Hann lést á þriðjudag á líknardeild eftir skammvinn veikindi, 85 ára að aldri. Þrátt fyrir aldurinn var það aðeins fyrir örfáum mánuðum sem Raggi kvaddi stóra sviðið með stórtónleikum í Hörpu, enda var það draumur hans að geta sungið á meðan heilsan leyfði og meðan einhver hefði áhuga á að hlusta. Síðustu daga hafa margir kvatt þennan merka mann og rifjað upp ljúfar minningar. Raggi var þekktur fyrir glaðværð, jákvæðni og óbilandi ást á söng og tónlist. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Helle Birthe Bjarnason, þrjú börn og ellefu barnabörn.

Vorkvöld í Reykjavík

„Við vorum hópur af krökkum að leika okkur úti um kvöld. Sól og sumar. Kvöldsólin sindraði á gluggum blokkanna í Gnoðarvogi. Einn gluggi var opinn og út um hann barst lag og ein lína í textanum var endurtekin: Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík. Röddin var svöl, mjúk og karlmannleg. Þarna heyrði ég í Ragga Bjarna í fyrsta skipti, og árið var 1963,“ skrifaði Bubbi Morthens í minningarorðum sem hann birti á Facebook þar sem hann kveður sinn gamla vin. Reykjavík var stór hluti af lífi Ragga Bjarna. Þar fæddist hann þann 22. september 1934 og ólst í kjölfarið upp í lítilli risíbúð við Lækjargötu. Tónlistin var honum í blóð borin. Foreldrar hans, Bjarni Böðvarsson og Lára Magnúsdóttir, voru bæði haldin lífstíðardóm tónlistarbakteríunnar. Lára er oft nefnd sem ein fyrsta dægurlagasöngkona landsins og faðir hans, Bjarni, gerði garðinn frægan með hljómsveit sinni.

Byrjaði á trommunum

Ragnar vissi snemma að hann vildi fátt annað gera en að syngja. Áhuginn hafi byrjað að kvikna er hann fylgdist með föður sínum spila á tónleikum. Í viðtali við Fréttablaðið árið 2005 sagði Raggi: „Pabbi, sem var með Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar, fór með mig ungan að Minni-Borg í Grímsnesi til að hlusta á Hauk Morthens. Hafi ekki verið búið að kveikja í mér þá, var ekki aftur snúið eftir að hafa hlustað á Hauk. Nú var ég ákveðinn hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór og tók stefnuna á söngframa, svona leynt og ljóst. Lærði á trommur hjá Svavari Gests, lauk prófi frá FÍH og trommaði fyrir hina og þessa fyrstu árin, eða allt þar til ég söng fyrir slysni á Akureyri þegar vantaði vanan trommuleikara sem gat líka sungið.“ Raggi var þá kominn ungur til Akureyrar með félögum sínum þar sem þeir höfðu verið ráðnir til að spila á Hótel KEA. Þá vantaði söngvara og hótelstjórinn hlustaði á þá alla syngja og fannst Raggi vera skásti kosturinn. Og eftir þetta varð ekki aftur snúið. Ragnar hafði þar tekið sín fyrstu skref til að verða hinn ódauðlegi Raggi Bjarna og átti eftir að deila söng sínum með þjóðinni næstu 70 árin. Raggi og söngurinn voru í eldheitu ástarsambandi og má í raun segja að þeir hafi náð að halda upp á platínumbrúðkaup.

Slysaðist í KK sextettinn

Raggi átti eftir að koma víða við á ferlinum. Svavar Gests heyrði í Ragga syngja í kringum 1953 og bauð honum í kjölfarið plötusamning. Á þeim tíma var Raggi trommuleikari í hljómsveit Árna Ísleifssonar og kom þá út fyrsta plata hans. Þá sneri Raggi sér frá trommunum og alfarið að söngnum, eða allt þar til hann þurfti að taka sér pásu þegar faðir hans féll frá síðla árs 1955. Raggi átti þá eiginkonu og tvö ung börn og þurfti að sjá fyrir þeim. Pásan varð þó ekki löng og árið 1956 slysaðist Raggi í KK sextettinn. Hann sagði DV árið 2014 frá þeirri ótrúlegu tilviljun sem leiddi hann saman við sextettinn. Raggi, sem var alla tíð með ólæknandi bíladellu, keyrði á þeim tíma leigubíl. Sextettinn bráðvantaði söngkonur og datt bassaleikara hljómsveitarinnar, Jóni Sigurðssyni, í hug að hringja eftir leigubíl og rúnta um bæinn til að leita að söngkonum. Raggi Bjarna var sendur í það útkall. „Ég mætti og keyrði hann. Þegar við vorum búnir að keyra á nokkra staði segi ég honum að hætta þessu veseni; ég gæti bara gert þetta og væri með textann í skottinu. Ég fór með sextettinum til að spila á vellinum og var fyrsti karlsöngvarinn til að koma fram á vellinum með íslenskri hljómsveit.“

Njóta hverrar mínútu

Árið 1960 kom út líklega frægasta og eftirminnilegasta lag Ragga á ferlinum, Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig, og varð Raggi þá orðinn einn frægasti dægurlagasöngvari þjóðarinnar. Skemmtanalífið var farið að rífa í og Raggi ræddi um hvað hann hefði á þeim tíma skemmt sér meira en góðu hófi gegndi. Hann sagði í samtali við DV: „Það er mikil blessun ef manni tekst að komast í burtu frá áfenginu og sígarettunum. Ég er afskaplega þakklátur að það tókst á endanum því lífið er svo stutt. Það verðum við að vita þótt að við séum kornung. Lífið líður hjá á örskotsstund, þetta ættu allir að hugleiða og njóta hverrar mínútu. Svona líður mér enn á áttræðisaldri, ég vil nota hverja stund. Ég hef ekki mikinn tíma. Enginn hefur mikinn tíma.“

Fann ástina í Kaupmannahöfn

Árið 1963 fannst Ragga kominn tími á tilbreytingu. Ári fyrr hafði slitnað upp úr hjónabandi hans og hann var kominn með leiða á lífinu í Reykjavík. Hann flutti þá til Kaupmannahafnar sem reyndist honum mikið gæfuspor því þar kynntist hann stóru ástinni sinni, Helle Jensen, sem varð hans stoð og stytta lífið á enda. Hann var þá við það að skrifa undir tveggja ára samning sem átti að færa hann á ferðalag víða um Evrópu. En hann tók Helle fram yfir samninginn. „Umboðsmaðurinn varð svo reiður við mig að hann barði skrifborðið sitt í sundur,“ sagði Raggi við DV árið 2014. Svavar Gests hafði svo samband við Ragga og vildi ljúka ferli sínum með Ragga og Elly Vilhjálms, en Elly og Raggi voru miklir vinir og vöktu mikla gleði þegar þau sungu saman. Þá sneri Raggi aftur til Íslands og tók að sjálfsögðu Helle með sér. „Helle er gæfan í mínu lífi. Hún hefur þessa þolinmæði og hugmyndafræði til að styðja við mig. Ég er þakklátur henni, samband okkar er kraftaverk.“

Síðar tók Raggi við hljómsveit Svavars Gests, sem varð þá að sjálfsögðu hljómsveit Ragnars Bjarnasonar, og spilaði með henni á Hótel Sögu í 19 ár. Samhliða spilamennskunni keyrði Raggi leigubíl.

Árið 1972 stofnaði Raggi hina frægu Sumargleði með Ómari Ragnarssyni sem ferðaðist um landið á sumrin í 16 ár. Auk Ragga og Ómars voru í Sumargleðinni Bessi Bjarnason, Karl Guðmundsson, Magnús Ólafsson, Þuríður Sigurðardóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Halli og Laddi, Hermann Gunnarsson og Þorgeir Ástvaldsson. Um Sumargleðina sagði Raggi í viðtali við DV árið 2014: „Við bulluðum og grínuðum út í eitt og þessi tími var sá allra gleðilegasti í mínu lífi. Það var mjög gefandi að ferðast um landið og kynnast Íslendingum.“

Bílaleiga og sjoppa í Breiðholti

Bíladellan lék stórt hlutverk í lífi Ragga. Hann keyrði lengi leigubíl, hann starfaði sem bílasali hjá Sveini Egilssyni og starfrækti um átta ár bílaleiguna R.B. bílar. Síðan rak hann ásamt Helle sjoppu í Breiðholti.

„Bílaleigan endaði með einhverjum ósköpum. En ég hef húmor fyrir því. Ég átti að vera með átta bíla en endaði með 30. Konan mín elti mig alla daga þegar ég var að sækja bíla. Hún hefur tvisvar lent í árekstri og í bæði skiptin keyrði hún aftan á mig. Hún var alltaf á eftir mér úti um allar trissur,“ sagði Raggi við DV 2014.

Raggi fylgdist vel með nýjungum í tónlist og hafði miklar mætur á ungu tónlistarfólki á Íslandi. Fyrir fimm árum söng hann með strákunum í XXX Rottweiler lagið Allir eru að fá sér og óskalag þjóðarinnar, Þannig týnist tíminn, með Lay Low. Tveimur árum síðar söng hann með Sölku Sól lagið I’ve seen it all úr kvikmyndinni Dancer in the Dark.

Raggi var mikils metinn meðal Íslendinga og hlaut margar viðurkenningar fyrir störf sín í gegnum árið. Hann fékk meðal annars viðurkenningu Stjörnumessu DV og Vikunnar árið 1980 sem söngvari ársins í 30 ár, fékk heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 1994, gullmerki FÍH 2003, fálkaorðuna 2004, var borgarlistamaður Reykjavíkur 2007, og fékk heiðurslaun listamanna árið 2019. Tónlistin var þó ekki það sem Raggi var stoltastur af. Í samtali við DV 2014 sagði hann: „Ég er stoltastur af börnunum mínum og barnabörnum, vinum mínum og fjölskyldu. Og Íslendingum. Ég er stoltur af því að vera hluti af þessari þjóð. Íslendingar eru framtakssamir og þeir eru duglegir, alveg óhræddir við að opna sig.“

Á meðan einhver nennir að hlusta

Í viðtali við helgarblað DV árið 2004 spurði blaðamaður Ragga hvort hann væri að hætta í bransanum.

„Ég hætti ekki neitt. Ég syng svo lengi sem einhver nennir að hlusta á mig. Það losnar enginn við mig strax, því get ég lofað.“ Í sama viðtali sagði Raggi um aldurinn og ferilinn: „Guði sé lof að ég hef fengið þá blessun að gera það sem mér finnst skemmtilegast. Haldið röddinni og getað verið áfram í tónlistinni, því sem ég hef gaman af. Það eru náttúrulega ekki allir sem eru svo heppnir að geta gert þetta fram eftir öllum aldri.“  Hann ítrekaði þetta svo aftur árið 2009 við DV: „Á meðan ég get gert þetta sæmilega og glatt einhverja með söngnum held ég áfram. Hvort það verði eftir áttrætt veit ég samt ekki. Ég hef verið heppinn, hef fengið að vinna við það sem ég hef mesta ánægju af og það er ómetanlegt. Ég skil nú ekki hvaðan þessi töffarastimpill kemur. Ég er enginn töffari, ég er bara singer.“

Við bjóðum góða nótt

Mikill meistari er fallinn frá. Hann snerti við mörgum en kærði sig þó kollóttan um frægðina. Það sem skipti hann máli var að gera það sem hann elskaði og deila því með þeim sem vildu hlusta. Fræg er sagan af því að þegar Ragga bauðst frægð í Bandaríkjunum. Þá barst honum boð frá sjónvarpsmanninum Johnny Carson um að koma í áheyrnarprufu fyrir amerískt sjónvarp. Raggi afþakkaði boðið þá pent, því hann hafði hreinlega engan áhuga á því.

Þegar Raggi spilaði á dansleikjum hér forðum þá endaði hann alltaf „show-ið“ á laginu Við bjóðum góða nótt, rétt eins og hljómsveit föður hans hafði gert á árum áður. Þá vissi fólk að ballið var búið. Blaðamaður sýnir Ragga því þá virðingu að ljúka hans balli með sama hætti:

 „Við bjóðum góða nótt,

á meðan húmið sig hjúpar hljótt,

lát söngs ljúfa mál, strengja stál,

stilla sál.

Lát söngsins enduróm,

yrkja í hjartanu fögur blóm,

það skapar lífinu léttan dóm.

 

Nú hljóðnar harpan mín,

heim til þín,

kveðju ber.

En brátt með fjör á ný,

við fögnum því,

hittumst hér.

 

Á meðan húmið hljótt

breiðir sinn faðm yfir frjálsa drótt

við bjóðum öllum, öllum góða nótt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Í gær

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla