Katrín nokkur er ekki alls kostar sátt við skilti sem stendur við götu á Ásbrú. Skiltið er hjartalaga og á því standa skilaboð á pólsku. Þau skilaboð eru að vísu ansi dúlluleg ef þeim er snarað á íslensku. Katrín segist æf innan hóps íbúa við Ásbrú og hefur færsla hennar vakið mikil viðbrögð á stuttum tíma.
„WTF Það gilda strangar reglur um skiltanotkun á almannafæri, þessi þrenging er nú alveg nógu mikil slysagildra án þess að það er verið að hengja á hana eitthvað fáránlegt skilti! Fyrir utan það, að síðast þegar ég gáði búum við enn á ÍSLANDI! Hvaða hálfvita datt þessi ósköp í hug? Ætti að sjá sóma sinn í að taka þetta niður áður en það þarf að kalla bæjarstarfsmenn út í það verk.“
Ljóst er að fáir eru sammála henni í athugasemdum. Guðjón nokkur skrifar: „í alvöru? ég veit reyndar ekki hvað stendur á þessu skilti, En skapar þetta í alvöru mikla slysahættu? Ég fór þarna framhjá í morgunn og áskynjaði ekki þessa miklu slysahættu. Vantaði kannski bara meira nöldur hingað inn?“
Því svarar Katrín. „Uhh já, þetta er fyrir mér. Og er bara allt í góðu að henda upp auglýsingarskiltum á pólsku út um allar götur? Ætli það væri ekki sagt eitthvað ef maður myndi henda upp auglýsingarskiltum á íslensku hérna útum allt.“