Kolbeinn Karl Kristinsson, viðskiptafræðingur og vörustjóri Icelandair, deildi þónokkrum ráðum á Twitter, sem eiga að einfalda fólki við fasteignakaup.
Elín nokkur óskaði eftir ráðum sem ættu að skýra það hvernig best væri að haga sér í íbúðakaupum, og þá kom Kolbeinn til bjargar.
Ég hef keypt talsvert af fasteignum, á þrjár sem stendur. Þetta er frekar basic en ask me anything.
Nokkur tips:
– 3M: 90% af fólki sér ekki framhjá Málun, Mublum og Myndum. Þessar eignir eru þitt besta bet.
– Þak, gluggar, frárennsli, rafmagn eru útgjaldaliðir.— Kolbeinn Karl (@KolbeinnKarl) February 17, 2020
Kolbeinn segist hafa keypt mikið af fasteignum í gegnum tíðina, en í dag á hann þrjár talsins. Á meðal þeirra ráða sem Kolbeinn gefur er að: Spyrja um nágranna, hræðast ekki viðhald og búast við móttilboði.
– “er þetta raunhæft verð” gefur þét oft tilfinningu fasteignasalans fyrir verðinu
– tilboð eru lagalega bindandi, hafðu fyrirvara um fjármögnun og ástandsskoðun
– berðu saman lánakosti á https://t.co/H7TuY299o0
– Þú getur oft lækkað verðið umfram kostnað við viðhald— Kolbeinn Karl (@KolbeinnKarl) February 17, 2020
– fyrirvari um yfirlýsingu húsfélags
– spurðu um nágrannana, færð ekki endilega heiðarlegt svar en betra en að spyrja ekki
– Borgar a.m.k. 1mkr við kaupsamning en skildu alltaf eftir greiðslu við afsal, eftir afhendingu
– lífeyrissjóðir lægstir í vöxtum, bankarnir hærri lán— Kolbeinn Karl (@KolbeinnKarl) February 17, 2020
– nýttu þér úrræði fyrstu kaupenda:
* getur notað uppsafnaðan viðbótarlífeyrissparnað síðustu ára
* getur komandi viðbótarlífeyrissparnað inn á lánið næstu árin
* ef þú kaupir ekki strax getur þú byrjað að safna honum strax
* sumir bankar veita hærra lán til fyrstu kaupenda o.fl.— Kolbeinn Karl (@KolbeinnKarl) February 17, 2020
– ef þú færð ekki greiðslumat skaltu skoða vel forsendur, ég féll einu sinni á 500þús lín láni eiginkonunnar sem þeir reiknuðu sem 30k á mánuði. Hækkaði þá lánsupphæðina bara um 500þús og tiltók að ég ætlaði að nota það í uppgreiðslu hins lánsins: voila
— Kolbeinn Karl (@KolbeinnKarl) February 17, 2020
Ferlið:
1. tilboð samþykkt
2. klára fyrirvarana: fara í greiðslumat, fá yfirlýsingu húsfélags, fá fagmann í að gefa grænt
3. kaupsamningur: eftir að fyrirvarar eru frá og þá er 1. greiðsla
4. afhending: önnur greiðsla
5. lán berast sjálfkrafa
6. afsal: lokagreiðsla, a.m.k. 1mkr— Kolbeinn Karl (@KolbeinnKarl) February 17, 2020
Að lokum, ekki hærðast smá viðhald. Áttaðu þig bara á raunkostnaði og reiknaðu það þá inn í verðið. Ef allt er 100% þá borgar þú eftir því.
Og ekki bjóða þitt max í fyrsta boði, þú færð yfirleitt móttilboð og gefur svo lokaboð (yfirleitt)— Kolbeinn Karl (@KolbeinnKarl) February 17, 2020
Að lokum þakkaði Elín Kolbeini fyrir ráðin, en hún sagði að þau hjálpuðu mikið.
Kærar þakkir! Þetta hjálpar helling!
— vaselín (@_elinasbjarnar) February 17, 2020