fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Sunna gerði grín að Bylgjunni og þá kom Rikki G á svæðið – Nýtt slagorð – „Allir kallar að tala nema 3 konur sem standa sig bara mjög vel“

Fókus
Mánudaginn 10. febrúar 2020 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

https://twitter.com/margrethugrun/status/1226868301181149184https://twitter.com/margrethugrun/status/1226868301181149184Líkt og flestir vita þá fór Hildur Guðnadóttir með sigur úr bítum á Óskarsverðlaunahátíðinni í gær, þegar tónlist hennar fyrir kvikmyndina Joker var valin sú besta.

Ármann Jakobsson, fræðimaður og rithöfundur birti færslu á Twitter, þar sem hann benti á að Hildur væri barnabarn fyrsta kvennprófessorsins við Háskóla Íslands.

Sunna Kristín Símonardóttir, doktor í félagsfræði bjó til litin brandara úr tísti Ármanns. Hún sagði að barnabarn Hildar gæti orðið fyrsta konan til að vera útvarpskona á Bylgjunni, en útvarpsstöðin hefur fengið talsverða gagnrýni vegna kynjahalla. Brandari Sunnu fékk mikið lof og hundruði læka.

Dagskrágerðarstjóri FM957, Ríkharð Óskar Guðnason, betur þekktur sem Rikki G, virtist ósáttur með grín Sunnu, en hann benti á að það væru þrjár útvarpskonur sem starfa á Bylgjunni.

Ummæli Rikka féllu í grýttan jarðveg, en nú hafa margir Twitter-verjar skotið til baka á Rikka. Fólk bendir Rikka á að þó að þrjár konur starfi á Bylgjunni, þá sé þið ansi lítill hópur af öllu útvarpsfólki stöðvarinnar. Meðal þeirra sem svara er áðurnefnd Sunna og það með uppástungu á nýju slagorði Bylgjunnar. „Allir kallar að tala nema 3 konur sem standa sig bara mjög vel.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Helsta ráð eftirsóttu karlkyns klámstjörnunnar

Helsta ráð eftirsóttu karlkyns klámstjörnunnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana