fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Drakk terpentínu sem ungabarn

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 1. desember 2020 11:32

Jakob Frímann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jakob Frímann Magnússon er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Jakob var ungur kominn á samning sem tónlistarmaður erlendis á tímum þegar afar fáir Íslendingar reyndu fyrir sér erlendis. Hann segir í þættinum frá því að foreldrar hans hafi skikkað hann til að mennta sig og fara ekki í ólifnað og fyrir það er hann afar þakklátur.

„Foreldrar mínir lögðu hart að mér að klára stúdentspróf og settu það skilyrði fyrir að ég einbeitti mér að tónlistinni að ég myndi klára menntun fyrst. Þau vildu ekki að ég yrði öldurhúsagutlari gefinn fyrir sopann og fyrir það er ég þeim þakklátur. Það var mjög algengt á þessum tíma að menn færu í músíkina og því fylgdi að menn voru mikið að fá sér. Eftir að hafa horft á þetta úr fjarlægð sé ég að þeir vinir mínir sem eru farnir í aðra vídd og ekki lengur meðal okkar að þar er töluvert samhengi við að hafa farið óvarlega með áfengi löngum stundum. Að taka spíra og sturta honum ofan í sig og slökkva á sér og vera ekki með sjálfum sér getur ekki verið gott fyrir mann til lengdar,“ segir hann.

Heilsan í forgangi

Jakob leggur mikið upp úr heilsusamlegu lífi, enda þekktur fyrir að vera unglegur. Hann segist alltaf hafa verið við frábæra heilsum en segist þó líklega ekki hafa gert sér grein fyrir langtímaáhrifum þess að hafa verið hætt kominn sem ungabarn eftir að hafa drukkið glas af terpentínu á vinnustofu móður sinnar.

„Ég man ekki eftir því að hafa orðið fyrir neinum heilsubresti í gegnum tíðina og nánast blygðast mín fyrir að segja það. En það er einn þáttur sem ég hef aðeins leitt hugann að undanfarið, sem sennilega hefur haft meiri áhrif á líf mitt og heilsu en ég áttaði mig á. Það var í frumbernsku þegar ég er eins árs gamall í Kaupmannahöfn. Móðir mín var flinkur listmálari og hún var einhvern tímann að mála og var búin að setja penslana í terpentínuglas til að hreinsa þá og svo hringir síminn og hún hleypur í hann og á meðan fer óvitinn í þetta rauða glas og gúlpar í sig terpentínunni í sig. Þetta hafði örugglega heilmikil áhrif á heilsuna mína að það hafi komið svona mikil terpentína í kerfið á mér þegar ég var ungabarn. Það var farið með mig upp á spítala og dælt upp því sem hægt var, en svo hefur þetta örugglega sest eitthvað inn í kerfið, á lendasvæðið og fleiri staði. Sennilega hefur það tekið líkama minn alveg þangað til að síðustu áramótum að hreinsa þetta allt saman alveg út. En ég vona að ég verði svo heppinn að fá að halda minni góðu heilsu og orku sem allra lengst.“

Skorti nánd

Jakob segist þakklátur fyrir uppvaxtarár sín, en eftir á að hyggja hafi hann líklega skort ákveðna nánd sem hafi mótað hann.

„Fyrstu árin frá eins árs aldri til fimm ára aldurs elst ég mikið upp hjá afa mínum og ömmu af því að foreldrar mínir bjuggu í New York. Þetta voru öðruvísi tímar en nú og þeim leist ekki alveg á hugmyndina að vera með pínulítið barn í þessarri stóru og hættulegu borg. Ég átti þarna frábæra tíma hjá afar góðu fólki, en ég hef stundum hugsað um það eftir á hvort mig hafi skort ákveðna nánd. Það hefur aðeins leitað á mig þetta „blueprint“ sem við verðum á fyrstu fimm til sjö árum ævi okkar. Ég var að leita að mömmunni, en fann hana ekki og hvíldi í faðmi ömmu minnar í staðinn og í knús hjá henni. En hún hafði upplifað fyrri heimstyrjöldina, spænsku veikina, berklana og seinni heimstyrjöldina, þannig að sýkingarhætta og smithætta var ofarlega í hugum fólks og mig skorti því eftir á að hyggja líklega nánd og það hefur að einhverju leiti mótað mig. Maður sér þetta betur núna þegar maður er kominn á þennan stað í lífi sínu að geta horft yfir þetta með ákveðinni yfirsýn.“

Í þættinum ræða Sölvi og Jakob um ótrúlegan feril Jakobs í tónlistinni, á hvaða vegferð Ísland er, lykilinn að því að halda sér ungum í anda og margt margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=xVL23Pqufv0

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“