fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Guðmundur glímdi við klám- og tölvuleikjafíkn

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 24. nóvember 2020 10:50

Guðmundur Ingi. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Guðmundur hefur leikið fjölda hlutverka bæði hér heima og erlendis. Hann lék nýlega lykilhlutverk í tölvuleiknum Assassins Creed Valhalla, sem er á stærðargráðu sem fæstir gera sér grein fyrir. Í þættinum segir Guðmundur frá reynslunni að leika í þessu verkefni.

„Þetta er svo ofboðslega stórt að maður gerir sér enga grein fyrir því. Ég skildi í raun ekkert hvað þetta var þegar ég fór í prufuna fyrir þetta hlutverk,“ segir hann.

„En að fara inn í þennan heim og hitta allt þetta fólk sem er að vinna að þessu er í raun sturlun. Þegar þeir sem standa að tölvuleiknum gáfu út stiklu fyrir leikinn fengu þeir 100 milljón áhorf á fyrsta sólarhringnum. Montreal, þar sem þetta var tekið upp, er ein af höfuðborgum tölvuleikjaiðnaðarins. Ég held að það hafi verið á bilinu sex til átta þúsund manns búin að vinna að þessu í þrjú ár þegar við komum inn. Þegar maður fer inn í höfuðstöðvarnar fer maður upp hæð eftir hæð eftir hæð og sér forritara eins langt og augað eigir. Það er rússneskt útibú sem gerir ekkert annað en að sjá um dýrin í leiknum.“

Öðruvísi

Það tók Guðmund svolítinn tíma að venjast því að leika þetta hlutverk, enda öðruvísi en að leika á sviði eða í bíómyndum.

„Þetta minnti mig mest á að æfa fyrir það að leika á sviði. Þú ferð í þröngan galla og svo eru svona litlir ljósnæmir punktar úti um allt og svo ferðu inn í rými sem er eins og leikfimisalur og það eru myndavélar alls staðar sem eru að pikka upp þessa ljósnæmu punkta. Svo sérðu þig bara á skjá sem fjólubláa punkta sem hreyfast í leikmynd sem þú sérð á stórum skjá. Svo er maður með hjálm með fjórum myndavélum sem taka stanslaust upp, vegna þess að sá sem er að spila leikinn á alltaf að geta snúið sér hvert sem er. Þannig að þetta er ekki eins og þegar það er verið að taka upp bíómynd og það koma pásur. Að því leiti er þetta líkara því að vera á sviði, af því að þú ert alltaf „on“. En þetta var mjög skrýtið fyrst. Að vera með mótleikarann á móti sér og við báðir með hjálm í einhverjum göllum, en svo venst þetta og var mjög skemmtilegt.“

Glímdi við fíkn

Guðmundur Ingi talar í þættinum líka um tímabil þar sem hann var í basli með sjálfan sig vegna klám- og tölvuleikjafíknar.

„Sem betur fer eignaðist ég ekki tölvu fyrr en 1998. Af því að þá missti ég dálítið tökin. Ekki bara klám, heldur fer ég líka að spila mikið tölvuleiki. Þetta var árið sem ég útskrifaðist úr leiklistarskólanum. Ég á nokkur ár strax eftir útskrift þar sem ég var ekki á góðri leið. Það gekk svo langt að ég hringdi mig inn veikan í leikhúsið af því að ég var ekki búinn með einhvern tölvuleik. Þetta byrjaði mjög sakleysislega. Ég var í sveit og það var alltaf mikið af vinnumönnum og klámblöð undir rúmum og auðvitað kom fyrir að maður var einn heima að leika og sá einhver blöð undir dýnum. Sumt af þessu var mjög saklaust, eins og brandarablöðin sem voru með teikningum og tígulgosinn, sem var með erótískum sögum og myndum. Ég man að ég las stundum upphátt úr þessu fyrir lesblindan frænda minn þegar við vorum 10-12 ára gamlir. Svo man ég að fyrst var keypt eitt vídeó-tæki á Reykholtsstaðinn sem svo var lagður kapall frá í öll húsin í kring, svo voru menn að stelast til að setja í hryllingsmyndir og klámmyndir á næturna. En svo þegar vídeó-tækin fóru að koma inn á heimilin almennt gerist það svo að við vinirnir fundum alltaf einhverjar spólur hér og þar og fórum að stelast til að horfa á klámmyndir. En ég man að þegar strákarnir vildu svo hittast og horfa á þetta saman þegar einhver var einn heima vildi ég ekki vera með í því, en vildi svo vera einn í mínu horni að gera það sama.“

Guðmundur segir að það sem hafi sett hann í vandræði hafi verið einangrunarhegðun, sem er mjög oft það sem býr til fíknivanda.

„Það sem síðan býr til vandann er að þetta er allt eitthvað sem er verið að gera í felum og maður þorði ekki að segja neinum frá. Það sem býr til þessa skömm er að maður er alltaf að gera þetta í einrúmi. Svo fer maður út í lífið með þá hugmynd að konur séu annars vegar klámmyndadrottningar og hins vegar guðum líkar verur eins og mæðurnar og ömmurnar í sveitinni sem sáu um heimilin. Og þetta er ekki góð blanda ef maður gerir sér síðan ekki grein fyrir að raunveruleikinn er aðeins öðruvísi. Þessi klámvæðing í bland við skömmina og slæmar hugmyndir um karlmennsku ertu kominn með hræðilega blöndu fyrir unga stráka.“

Í þættinum ræða Sölvi Og Guðmundur um leiklistina, stöðu ungra karlmanna í samfélaginu, fíknisjúkdóma, hvað það er sem einkennir okkur sem þjóð og margt margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan.

Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=-pJoAuce710&t=4750s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“