fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Gæludýrin í Hvíta húsinu

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 22. nóvember 2020 14:30

Gæludýrin í Hvíta húsinu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt frá því að George Washington var forseti Bandaríkjanna hefur verið rík hefð fyrir því að gæludýr séu í Hvíta húsinu. Donald Trump er fyrsti forsetinn í rúmlega hundrað ár til að brjóta hefðina en Joe Biden mun koma henni aftur á í janúar.

Donald Trump Bandaríkjaforseti var sá fyrsti í meira en hundrað ár til að vera ekki með gæludýr í Hvíta húsinu. Joe Biden, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, ætlar að koma hefðinni á aftur og tveir þýskir fjárhundar munu mæta með honum í Hvíta húsið í janúar, þeir Champ og Major. Major var ættleiddur frá dýraathvarfi. Champ er tólf ára gamall og gekk til liðs við Biden-fjölskylduna árið 2008. Fjölskyldan ættleiddi síðan Major árið 2018.

Gæludýr Hvíta hússins hafa lengi notið vinsælda meðal almennings. Hundur Warrens G. Harding, 29. forseta Bandaríkjanna, var fyrsta gæludýrið til að fá umfjöllun í fjölmiðlum. Það frægasta er þó örugglega Checkers, hundur Richards Nixon.

Eins og fyrr segir hefur verið rík hefð fyrir því að forsetar eigi gæludýr. Það er því langur listi að fara yfir hvert gæludýr og hvern forseta, hér má líta á brot af því fjölbreytta dýralífi sem hefur verið í Hvíta húsinu.

Biden hjónin ásamt hundunum.

JOE BIDEN

Joe Biden fékk þýska fjárhundinn Champ árið 2008. Hann nefndi hundinn Champ því faðir hans sagði oft við hann þegar lífið var erfitt: „Stattu upp, kappi (e. champ).“ Tíu árum seinna ættleiddi Biden-fjölskyldan þýska fjárhundinn Major, en þetta verður fyrsti hundurinn til að vera ættleiddur úr dýraathvarfi í Hvíta húsinu.

Obama fjölskyldan og hundarnir.

BARACK OBAMA

Barack Obama eignaðist portúgölsku vatnahundana Bo og Sunny á forsetatíð sinni. Malia Obama, dóttir hans, er með ofnæmi fyrir flestum hundategundum en þessi hundategund er ekki sérlega ofnæmisvaldandi og varð því fyrir valinu.

George W. Bush og Barney.

GEORGE W. BUSH

Það fylgdu mörg dýr forsetaembætti George W. Bush. Hundurinn Spot „Spotty“ Fetcher og kötturinn India „Willie“ fylgdu honum í Hvíta húsið, hann eignaðist seinna hundana Barney og Miss Beazley, sem bæði voru af tegundinni Scottish Terrier. Svo má ekki gleyma kúnni hans, Ofelia.

Bill Clinton og kötturinn Socks.

BILL CLINTON

Bill Clinton kom með köttinn Socks í Hvíta húsið. Seinna eignaðist hann hundinn Buddy, sem var súkkulaðibrúnn Labrador.

Ronald Reagan og Lucky.

RONALD REAGAN

Það mætti segja að dýragarður hafi fylgt Ronald Reagan í Hvíta húsið. Hann átti hundana Lucky, Rex, Victory, Peggy, Taca og Fuzzy, nokkra hesta og kettina Cleo og Söru.

Richard Nixon og hinn frægi Checkers.

RICHARD NIXON

Richard Nixon hélt ræðu sex vikum fyrir forsetakosningarnar árið 1952. Hann svaraði ásökunum um spillingu og réðst á andstæðinga sína. Hann sagðist ætla að halda eftir einni gjöf, sama hver útkoman yrði, hundi sem börn hans hefðu nefnt Checkers, og þar með var þessi fræga ræða nefnd „Checkers Speech“. Í dag er hugtakið oft notað til að lýsa tilfinningaþrungnum ræðum stjórnmálamanna.

Hundurinn Skip ásamt Roosevelt fjölskyldunni.

THEODORE ROOSEVELT

Það hefur enginn átt fleiri gæludýr en 26. forseti Bandaríkjanna, Theodore Roosevelt. Hann átti einnig nokkur ó h e f ð b u n d i n gæludýr, eins og lítinn björn sem hét Jonathan Edwards, eðlu sem hét Bill, nokkur marsvín, hest, kanínu, uglu og hýenu. Roosevelt-fjölskyldan hélt mikið upp á hundinn Skip sem má sjá á myndinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 5 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla