Athafnakonan Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fyrrverandi stjórnarformaður VÍS og fyrrverandi hluthafi í Skeljungi, og Grímur Alfreð Garðarsson, einn eigenda fjárfestingarfélagsins Vörðu Capital, hafa sést hönd í hönd síðustu vikur samkvæmt heimildum DV. Gæti svo farið að hér stefni í athafnapar með meiru.
Grímur var áður í sambandi með Önnu Lilju Johansen en upp úr því slitnaði fyrr á árinu. Svanhildur Nanna er fyrrverandi fimleikastjarna og hefur verið umsvifamikil í íslensku viðskiptalífi til lengri tíma ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum Guðmundi Þórðarsyni, en leiðir þeirra skildi fyrir nokkru.
Grímur er fyrrum eiginmaður Helgu Árnadóttur tískudrottningar en hún er einn eigandi Best Seller veldisins og þykir hafa gott viðskiptavit svo gustar af henni hvert sem hún fer.