fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Magnús Scheving rifjar upp erfiðasta augnablikið: „Foreldrarnir grétu og maður þurfti að reyna að halda andliti“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 15. október 2020 10:36

Magnús Scheving. Mynd/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Scheving er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í Podcasti Sölva. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim segir í þættinum frá merkilegustu augnabliknunum í ótrúlegri atburðarrás Latabæjar, þar sem Magnús var með nánast stanslausa dagskrá frá morgni til kvölds á hverjum einasta degi í áraraðir. Eftir áralanga vinnu komst hugverk Magga á þann stað að börn úti um allan heim elskuðu Latabæ. Hann segir í viðtalinu frá gleðinni við það, en jafnframt gífurlega erfiðum augnablikum þegar mikið veik börn vildu sjá íþróttaálfinn.

„Svo voru líka hliðar í þessu sem voru oft erfiðar og mjög tilfinningalegar. Kannski börn á líknardeild sem áttu þá síðustu ósk að sjá íþróttaálfinn. Það eru börn sem hafa verið jörðuð í búningnum og fleira í þeim dúr. Ég man eftir einu erfiðasta augnablikinu sem ég hef lent í. Það var barn sem átti ekki mikið eftir, einhverja fjóra daga, strákur sem var mjög veikur og það var búið að skera hann alveg eftir öllu höfuðinu. Hann hafði verið að horfa á Latabæ á meðan það var verið að skera hann upp og draumurinn var að fá að sjá Íþróttaálfinn. Ég mæti í búningnum á spítalann og þegar ég kom var hann líka í búning og stóð í súperhetjustellingu. Hann sýndi mér alls konar hluti og gerði það sem hann gat og tók mig inn í herbergi og sýndi mér rúmið sitt og við vorum þarna saman í 4-5 tíma. Á meðan voru foreldrarnir grátandi að taka myndband af þessu öllu. Þau grétu bara og grétu og maður þurfti að reyna að halda andlitinu á meðan. Ég get varla lýst þessu, þetta var gríðarlega stór stund hjá stráknum. Maður labbar einhvern veginn út eftir þetta og hugsar hvað maður er heppinn og hvað sumir þurfa að ganga í gegnum, foreldrar og börn. Ég man að ég hugsaði: „Að gera Latabæ er bara grín, það er ekki einu sinni erfitt, hvað er maður að kvarta yfir mikilli vinnu og löngum dögum þegar maður sér hvað sumir þurfa að ganga í gegnum.““

Eftirminnileg atvik

Maggi og teymi hans ferðuðust um allan heim þegar vinnan við Latabæ stóð sem hæst og sum atvikin sem áttu sér stað voru eftirminnileg.

„Ég fór og heimsótti mikið af fátækrahverfum í Mexico City til dæmis og það var alveg sama hvar ég kom, það þekktu þetta allir. Svo erum við einu sinni að keyra á hraðbrautinni og sjáum útundan okkur í einu hverfinu að Latibær er að skemmta úti á götu og allir í búningum. Ég bað bílstjórann um að beygja og fara þarna niður eftir og þegar við stoppum sjáum við að það er sýning í gangi. Þeir sem voru með sýninguna sáu mig og þekktu mig strax og af því að þetta var „pirate“ útgáfa af Latabæ held ég að þeir hafi verið hræddir að ég yrði ósáttur. En þegar ég sagðist endilega vilja að þeir héldu áfram og settist niður fann ég gleðina og virðinguna og það komu fleiri hundruð börn þarna að. Á heimilum margra þeirra voru ekki einu sinni til sjónvörp, en samt þekktu þau þetta öll. Að upplifa það þegar þessi börn voru að sýna mér æfingarnar og virðingin öll var algjörlega ótrúlegt. Maður varð bara klökkur.“

Ströng dagskrá

Þegar framleiðslan á Latabæ stóð sem hæst var dagskrá Magnúsar skipulögð nánast hvern einasta dag mörg ár fram í tímann. Maggi segir að það hafi komið eðlilega fyrir hann að hugsa svona stórt. Hann segir til einföldunar að ástæðurnar séu tvær.

„Annars vegar ætlaði að læra að vera arkítekt og hönnun og fór að læra smíði og þá sagði smiðurinn við mig: „Ég ætla að kenna þér þannig að ég ætla ekki að tala við þig“. Það sem hann átti við var að með því að veita öllu sem væri að gera næga eftirtekt þyrfti ég að læra sjálfstæð vinnubrögð og átta mig á því hvenær vantaði hluti og að hugsa fram í tímann. Með því að æfa sig í því að hugsa fram í tímann og hvað þarf að gerast byrjar heilinn í manni að vinna öðruvísi. Þarna lærði ég mjög mikið. Hitt var svo að kenna leikfimi. Þú ert með hundrað manns í tíma í sextíu mínútur og allir koma með mismunandi ástæður og þarfir í tímann. Einn vill horfa á kennarann, annar vill heyra góða tónlist, sá þriðji vill bæta þol, sá næsti vill betri rass og enn annar vill bara útrás og gleyma vinnunni sinni. Þú þarft að sníða þetta þannig að öllum líði eins og þeir hafi fengið sitt og maður lærir rosalega á þessu ef maður setur metnað í það.“

Í þættinum fara Sölvi og Magnús yfir feril Magga, sem verður að teljast einn merkilegasti frumkvöðull Íslandssögunnar. Leikfimikennarinn sem endaði á sjónvarpsskjám milljóna manna um allan heim ræðir um hvað þarf að hafa til brunns að bera sem frumkvöðull, lykilatriðin í að vera hamingjusamur í lífinu og fleira og fleira.

Horfðu á þáttinn í heild sinni hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=KvgSZQa5XpU&t=101s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Í gær

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla