fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Haukur segir að handbolti sé óskiljanleg íþrótt – Nefnir nokkrar kostulegar ástæður

Fókus
Þriðjudaginn 21. janúar 2020 08:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haukur Örn Birgisson, lögmaður og bakþankahöfundur Fréttablaðsins, segir að handbolti sé í raun galin íþrótt. Evrópumótið stendur nú yfir sem kunnugt er þar sem Ísland er í eldlínunni. Í dag leikur Ísland gegn Noregi í milliriðlum mótsins.

Í bakþönkum Fréttablaðsins í dag skrifar Haukur um handboltann sem stundum er nefnd þjóðaríþrótt Íslendinga.

„Handbolti er yndisleg íþrótt en á sama tíma gjörsamlega óþolandi. Sem áhorfandi upplifir maður hættulegar geðsveiflur en maður getur ekki sleppt því að fylgjast með. Íþróttin hefur eitthvert undarlegt aðdráttarafl – dulúð. Hún er ekki bara hjúpuð leyndardómi, hún er einnig fullkomlega óskiljanleg. Þar liggur aðdráttaraflið.“

Haukur nefnir svo nokkur atriði máli sínu til stuðnings:

„Svo dæmi séu tekin þá mega leikmenn ekki stíga á línuna en samt hefur það aldrei gerst í sögu handboltans að horna- eða línumenn séu ekki lentir í teignum þegar þeir loks kasta frá sér knettinum. Hugtakið leiktöf virðist óskilgreint en tekur þó breytingum eftir því sem líður á leikinn. Reyndar virðast leikreglurnar í heild breytast þegar stutt er eftir af leiktímanum, sérstaklega þegar staðan er jöfn. Gula spjaldið er merkingarlaust. Það er enginn sjáanlegur munur á ruðningi og aukakasti. Það er ekki fótur fyrir ofan hné. Þegar leikmaður er „tekinn úr umferð“ þá gerir hann heiðursmannasamkomulag við hitt liðið um að draga sig í hlé, lengst úti á velli. Leikkerfin eru nefnd eftir fyrrverandi kommúnistaríkjum og svo eru það skrefin, maður. Hversu mörg mega þau eiginlega vera? Verst er að krossinn, sem var það svalasta við íþróttina, hefur verið afnuminn. Í staðinn veifa dómarar bláu spjaldi, sem lítur út eins og debetkort. Það voru vond skipti.“

Haukur segir svo að markverðirnir séu sér kapítuli út af fyrir sig.

„Markmennirnir hljóta að vera bilaðir og mikil er ábyrgð þjálfaranna sem ákváðu að setja Guðmund Hrafnkels, Bergsvein, Sigmar Þröst og Björgvin Pál milli stanganna þegar þeir voru í sjötta flokki. „Heyrðu vinur, má ekki bjóða þér að láta kasta í þig grjóthörðum leðurbolta á 130 km hraða næstu 30 árin? Því oftar sem þú færð hann í þig, því betra.“ Magnað sport!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Í gær

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla