Líkamsræktarþjálfarinn þekkti Alexandra Sif Nikulásdóttir á von á barni með unnusta sínum Arnari Frey Bóassyni ef marka má áramótamynd sem parið birti á Instagram en þar halda þá á útprentuðum myndum af fóstri úr ómsjá.
Alexandra er 31 árs gömul og starfar sem þjálfari hjá FitSuccess hún þjálfar eingöngu konur. Alexandra er með á tíunda þúsund fylgjendur á Instragram en hún gengur undir nafninu Ale Sif á Samfélagsmiðlum.
Þess má geta að fyrir nokkrum árum skrifaði Ale Sif vinsælar greinar um líkamsrækt og mataræði í DV undir heitinu Ræktardurgurinn.