Bíó Paradís opnaði eftir endurbætur sl. föstudagskvöld. Stemmingin var mikil og geisluðu kvikmyndaáhugamenn og konur af gleði. „Það var ótrúlega góð tilfinning að opna á ný – en við erum búin að vera að vinna allan sólarhringinn að þessu síðustu metrana svo þetta var tilfinningarík og mögnuð stund. En við vorum öll svolítið búin á því,“ segir Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastýra Bíó Paradís.
Tilefni opnunar var Skjaldborgar, hátíð íslenskra heimildamynda sem er vanalega á Patreksfirði en þurfti af aflýsa hátíðinni vegna Covid-19. Hátíðin var því haldin í Reykjavík í samstarfi við Bíó Paradís en svo skemmtilega vill til að opnun Bíósins og kvikmyndahátíðarinnar var um sömu mundir. Hátíðin tókst afbragðsvel og ljóst að bíóáhugi landsmanna er ekki á undanhaldi.
Eins og frægt er orðið stóð tæpt um tíma hvort bíóinu yrði lokað til frambúðar vegna húsnæðisleysis en svo fór að bíóið verður áfram á sama stað en ráðist var í miklar endurbætur. Hrönn segir bíóið vera opið en mikið sé lagt upp úr sóttvörnum. „Það er bara verið að fara eftir fyrirmælum sóttvarnarlæknis og gætt að ítrustu varúð alls staðar. En það er opið,“ segir Hrönn en Bíó Paradís skartar einnig bar sem margir kvikmyndunnendur halda mikið upp á.