María Margrét Jóhannsdóttir, fyrrverandi samskiptastjóri Play og blaðakona og eiginmaður hennar Ragnar Jónasson, rithöfundur, hafa sett glæsilega eign sína við Sólvallagötu á sölu.
Ragnar er án efa einn vinsælasti spennusagnahöfundur landsins svo andar innblástursins svífa væntanlega yfir göngum íbúðarinnar.
Íbúðin er hin glæsilegasta og virkilega björt og hlýleg. Má þar merkja bókmenntaáhuga hjónanna í veglegum bókahillum sem prýða heilan vegg í stofunni.
Eldhúsið er sérstaklega smekklegt og litríkar móasík flísar setja punktinn yfir i-ið og appelsínugular sprautulakkaðar hurðar gera eldhúsið einstaklega aðlaðandi.
Í garðinum er heitur pottur, sem er í sameign hússins þar sem er hægt að slappa af eftir erfiðan dag, eða bara eftir venjulegan dag, eða bara alveg að tilefnislausu. Svefnherbergin eru þrjú og með íbúðinni fylgir einnig helmingur af sameiginlegum tvöföldum bílskúr.
Hér má sjá frekari upplýsingar um eignina