Síðastliðinn föstudag stofnaði hópur af nokkrum vinsælustu TikTok-urum landsins sameiginlega síðu, undir heitinu „Yfirstéttin“. Aðgangurinn er kominn með hátt í fimmtán hundruð fylgjendur og hátt í fimm þúsund læk. Á síðunni eru nú uppi átta myndbönd þar sem að aðstandendur aðgangsins kynna sig. Það vinsælasta hefur nú fengið 24 þúsund áhorf.
Þónokkrar umræður hafa skapast um „Yfirstéttina“ en margir hafa gagnrýnt aðganginn, þá sérstaklega nafnið sem sumum þykir benda til elítisma.
Allavega tveir stofnmeðlimanna virðast þó hafa sagt sig úr hópnum, en myndböndum þeirra hefur nú verið eytt. Önnur þeirra hafði komið því á framfæri að sér þætti nafnið væri ekki til fyrirmyndar.
Þá hefur verið stofnaður skopstælingar-aðgangur sem gerir grín að „Yfirstéttinni“. Einn stofnmeðlimanna, sem gengur undir nafninu Djansí, hefur tekið vel í alla gagnrýnina og sagði í einu myndbandinu: „Held að þær hafi gert þetta til að gera grín af þessum account, sem er allt í lagi. Maður verður að hafa húmor fyrir sjálfum sér,“ Þá sagði hann einnig „Bara svo það sé á hreinu þá vorum við aldrei að halda því fram að við værum fræg og þess vegna værum við að gera þennan account. Mig hefur bara alltaf langað að gera svona collab project með öðrum creators. Það er bókstaflega eina ástæðan.“
TikTok hefur undanfarin misseri fest sig í sessi sem einn vinsælasti samfélagsmiðill heims. Þar birtir fólk gjarnan myndbönd af öllu mögulegu, gjarnan í takt við tónlist.