Hin dásamlegi töfratími hönnunar og innblásturs hófst í gær þegar HönnunarMars var hleypt af stað víðs vegar um borgina. Opnunarpartý HönnunarMars fór fram í Ráðhúsinu þar sem helstu stjörnur íslenskrar hönnunar skáluðu fyrir hugviti og hugrekki í skapandi félagsskap. Fagnað er hugviti og dásamlegri hönnun víða um bæ næstu daga en fjöldi gleðskapa var í gær. Hér má sjá dagskrá HönnunarMars.
Í opnunarpartýinu í gær var einnig var verið að kynna úrslit í götugagna samkeppni á vegum Borgarlínunnar. Samkeppnin var á vegum Hönnunarmiðstöðvar og Borgarlínunnar og viðfangsefnið var að hanna framleiðslulínu af götugögnum/húsgögnum fyrir Borgarlínustöðvar. Markmiðið er að skapa Borgarlínu sterka heildarmynd og auðkenni í borgarlandslaginu. Verðlaunatillögurnar verða til sýnis í Bókasafni Kópavogs en þar verða þær hluti af Næsta stopp: Hamraborg sem er fræðandi sýning um Borgarlínuna sem verður opnuð í dag 25. júní og stendur til þriðja ágúst næstkomandi.
Í fyrsta sæti var hönnunarstudíóið Formatyka en það eru þau Iga Szczugiel og Krystian Dziopa sem eru hönnuðir tillögunnar. Tillaga þeirra ber nafnið: Lifa, ferðast, njóta – endurtekið.
Annað sætið hlaut tillagan Taktur en höfundar hennar eru þau Anna Leoniak og Bjarni Kristinsson
Þriðju verðlaun fóru til tillögunnar Línan eftir þau Karl Kvaran, Lilju Kristínu Ólafsdóttur og Sahar Ghaderi