fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Tímavélin – Manstu eftir kosningabaráttum síðustu áratuga?

Fókus
Laugardaginn 13. júní 2020 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Senn gengur íslenska þjóðin til forsetakosninga þar sem kosið verður á milli sitjandi forseta, Guðna Th. Jóhannessonar, og Guðmundar Franklíns Jónssonar. Áður var það óhugsandi að bjóða sig fram gegn sitjandi forseta, en nú er tíðin önnur. Því er viðeigandi að Tímavélin horfi að þessu sinni aftur til kosningabaráttu undanfarinna þriggja áratuga.

Fyrst kvenna – Kosningar 1980 

Í framboði voru:

  • Vigdís Finnbogadóttir 
  • Guðlaugur Þorvaldsson 
  • Albert Guðmundsson 
  • Pétur J. Thorsteinsson

Forsetakosningarnar 1980 þóttu stórtíðindi víða um heim. Þá var Vigdís Finnbogadóttir kjörin, fyrst kvenna, sem forseti Íslands og varð þar með fyrsta konan til að verða þjóðarleiðtogi í heiminum. Það vakti ekki síður athygli að Vigdís var ókvænt, einstæð móðir. Fengu þessar staðreyndir töluverða athygli í kosningabaráttunni þar sem Vigdís var gjarnan spurð út í makaleysið.

„En ég hef aldrei orðið vör við að það væri fjötur um fót að hafa ekki karlmann mér við hlið. Og ætti ég bónda núna, væri líklegra að framboð mitt hefði hreinlega aldrei komið til. Ég hefði aldrei boðið sjálfstæðum karlmanni upp á þetta stúss!“ sagði Vigdís í aðdraganda kosninganna, í samtali við Dagblaðið

Vigdís hafði undirgengist brjóstnám vegna brjóstakrabbameins, staðreynd sem hún bjóst varla við að myndi skipta máli í framboði hennar. Engu að síður fékk hún einu sinni spurninguna hvort hún teldi sig geta verið forseta, með aðeins eitt brjóst. Vigdís lét spurninguna ekki slá sig út af laginu og lét þetta fræga svar falla: „Það stóð nú aldrei til að hafa þjóðina á brjósti.“

Lýðveldi kvennanna – Kosningar 1988

Í framboði voru:

  • Vigdís Finnbogadóttir
  • Sigrún Þorsteinsdóttir

„Lýðveldi kvennanna“ var fyrirsögn sem franska blaðið Libération sló upp árið 1988, þegar Vigdís Finnbogadóttir forseti varði embætti sitt gegn framboði Sigrúnar Þorsteinsdóttur, húsfreyju úr Vestmannaeyjum. Ísland vakti athygli fyrir stöðu sína í kvenréttindabaráttunni, en þarna var kona, sitjandi þjóðarleiðtogi, að etja kappi við aðra konu og þar að auki voru sex kvenréttindakonur í þingflokki á Alþingi.

Á þessum tíma hafði það aldrei gerst að sitjandi forseti fengi mótframboð. Sigrún Þorsteinsdóttir kvaðst standa fyrir róttækum breytingum á forsetaembættinu og vildi gera embættið virkara og pólitískara, meðal annars með beitingu neitunarvalds. Vigdísi stafaði þó aldrei ógn af mótframboðinu, enda mældist hún með mikla yfirburði í skoðanakönnunum

Sigrún og stuðningsmenn hennar gagnrýndu forseta fyrir tómlætið, en Vigdís neitaði meðal annars að taka þátt í kappræðum í sjónvarpi. Sigrún var jafnvel gagnrýnd fyrir að dirfast að bjóða sig fram gegn Vigdísi, það væri sóun á peningum skattborgara, þar sem Vigdís var afar farsæl og vel liðin í starfi. Fór að endingu svo að Vigdís hlaut yfirburðakosningu, með yfir 90 prósent greiddra atkvæða.

Kosningar þessar voru engu að síður sögulegar, þar sem fordæmi var þar sett fyrir mótframboði gegn sitjandi forseta, en slíkt hefur ítrekað gerst síðan. Hins vegar þótti afgerandi kosning Vigdísar benda til þess að íslenska þjóðin kærði sig ekki um pólitískan forseta. Vigdís stóð fyrir því að forseti væri sameiningartákn þjóðarinnar og vildi efla land, þjóð og tungu.

Ekki lengur en 12 ár – Kosningar 1996

Í framboði voru:

  • Ólafur Ragnar Grímsson 
  • Pétur Kr. Hafstein
  • Guðrún Agnarsdóttir
  • Ástþór Magnússon

Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti 1996. Í beinni línu hjá DV í aðdraganda kosninga sagðist hann ekki hafa hug á því að sitja jafn lengi og Vigdís hafði gert, sem sat í 16 ár.

„Mér finnst 16 ár ansi langur tími, þótt í því felist engin gagnrýni á Vigdísi Finnbogadóttur né Ásgeir Ásgeirsson. Ég tel reyndar að ef Vigdís hefði boðið sig fram aftur hefði þjóðin kosið hana áfram. […]. Fljótt á litið eru 8 til 12 ár eðlilegri tími heldur en 16 ár.“ Öðruvísi fór þó og var Ólafur forseti í 20 ár og sat því lengst allra forseta á Íslandi

Ástþór og tómatsósan – Kosningar 2004 

Í framboði voru:

  • Ólafur Ragnar Grímsson 
  • Baldur Ágústsson 
  • Ástþór Magnússon

Ástþór Magnússon reyndi í þriðja sinn árið 2004 að hafa betur gegn Ólafi Ragnari í forsetakosningum. Ólafur reyndist þó sjálfkjörinn árið 2000, þar sem framboð Ástþórs var dæmt ógilt vegna annmarka á meðmælendalista. Þar mátti finna nöfn sem ekki fundust skráð í þjóðskrá, svo sem Andrés Önd og Jesús Kristur.

„Ég þarf enga tómatsósu núna. Hún var einungis hugsuð sem segull á fjölmiðlana, sálarástand fjölmiðlamanna virðist vera þannig að maður þarf einhvern svona leikþátt til þess að ná athygli þeirra. Það þarf tómatsósu til þess að fá umfjöllun um mikilvægasta málefni heimsins, friðarmálin,“ sagði Ástþór þegar blaðamaður DV gantaðist og spurði hvar tómatsósan væri, en Ástþór hafði notað tómatsósu til að vekja athygli á friðarboðskap sínum, meðal annars í réttarsal og þegar hann fór á fund við þáverandi útvarpsstjóra, Markús Örn Antonsson, og færði honum tómatsósu.

Eftir að Ástþór tilkynnti um framboð sitt kvæntist hann unnustu sinni, Natalíu Wium. Það vakti athygli síðar á árinu þegar lögregla var kölluð út að heimili Natalíu, þar sem Ástþór var staddur og reyndi að henda henni út úr íbúðinni, sem Ástþór átti þó ekki sjálfur, samkvæmt heimildum DV á þeim tíma. Þegar lögreglu bar að garði lá Ástþór fullklæddur undir sæng og þóttist sofa.

Ólafur gegn DV – Kosningar 2012 

Í framboði voru:

  • Ólafur Ragnar Grímsson
  • Þóra Arnórsdóttir
  • Ari Trausti Guðmundsson
  • Herdís Þorgeirsdóttir
  • Andrea J. Ólafsdóttir
  • Hannes Bjarnason

Árið 2012 var þess freistað að ná forsetastólnum undan Ólafi. En skoðanir á honum í samfélaginu voru þarna orðnar skiptar, eftir að hann fór að skipta sér töluvert af störfum Alþingis og einnig sökum meintrar þátttöku hans í aðdraganda hrunsins 2008, sem DV fjallaði um. Ólafur varð því fyrsti sitjandi forseti til að hefja virka kosningabaráttu

Ólafur gagnrýndi fréttaflutning DV harðlega og taldi blaðamenn viljandi hampa Þóru Arnórsdóttur, með því að fjalla neikvætt um Ólaf og jákvætt um Þóru. Blaðamenn DV fóru á fund Ólafs og óskuðu eftir skýringum á þessum ásökunum og úr urðu nokkrar deilur, sem vöktu töluverða athygli. „Ertu komin til að koma í deilur, eða ætlar þú að taka viðtal við mig?“ spurði Ólafur blaðamann DV, spurður út í ásakanir hans um hlutdrægni DV í forsetakosningunum. Hann bar RÚV heldur ekki vel söguna.

„Það blasir við hjá Ríkissjónvarpinu að Svavar Halldórsson [eiginmaður Þóru] fékk að misnota fréttatíma Sjónvarpsins til þess að búa til áróðursfrétt gegn mér, á sama tíma og var verið að vinna könnun um fylgi Þóru, mín og annarra til að undirbúa framboð gegn mér.

Sögulegur fjöldi frambjóðenda – Kosningar 2016

Í framboði voru:

  • Guðni Th. Jóhannesson 
  • Halla Tómasdóttir
  • Andri Snær Magnason 
  • Davíð Oddsson 
  • Sturla Jónsson 
  • Elísabet Kristín Jökulsdóttir
  • Guðrún Margrét Pálsdóttir
  • Ástþór Magnússon 
  • Hildur Þórðardóttir

Þegar Ólafur settist loks í helgan stein varð uppi fótur og fit, þar sem allir og amma þeirra hugðu á framboð. Alls voru níu frambjóðendur í framboði, fimm karlmenn og fjórar konur. Þrettán aðrir höfðu lýst yfir framboði, en dregið til baka af ólíkum ástæðum.

Ólafur Ragnar hafði greint frá því í áramótaávarpi sínu að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér. Í apríl virtist hann þó hafa skipt um skoðun, bara til að skipta aftur um skoðun í maí

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki