fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Uppnám yfir hundaskít á leikskólalóð: „Fólk er slegið“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 21. apríl 2020 12:00

Myndir: Skjáskot/Vimeo - Aðsend mynd: Oliver Þórisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oliver Þórisson var á göngu með hundinn sinn í gærkvöldi. Hann gengur yfirleitt framhjá leikskólanum Sólhvörf í Kópavogi og í kringum lóðina. Hann rak augun í hjól á miðjum leikvelli leikskólans og sá að það var eitthvað undir hjólinu.

„Ég sá hjól þarna úti og sá að það var eitthvað aftan á því. Mig grunaði strax að þetta væri hundaskítur, þar sem það eru mjög margir hundar hérna í hverfinu og ég hef séð fólk fara inn á svæðið með hundana sína,“ segir Oliver í samtali við DV.

Oliver hafði rétt fyrir sér. Um var að ræða hundaskít í poka undir hjóli í eigu leikskólans. Hann ákvað að fjarlægja pokann svo hann myndi ekki enda í höndunum á litlu barni.

„Það var vissulega snyrtilegt af viðkomandi að setja hundaskítinn í poka en fyrst að hann var að þessu, af hverju að taka ekki pokann með? Það er ruslatunna við innganginn hjá leikskólanum. Það hefði verið mjög einfalt.“

Oliver veltir fyrir sér hvort að þetta hafi verið krakkar á göngu með hundinn sinn og þess vegna skilið hundaskítinn eftir.

„En ég stórefa það, því af hverju var þetta sett í poka ef ætlunin var ekki að taka það með?“

Hörð viðbrögð

Oliver deildi myndinni með hverfishóp sínum á Facebook. Aðspurður um viðbrögðin sem myndin hefur fengið segir Oliver:

„Fólk er slegið. Allir sem sjá svona verða náttúrlega bara leiðir. Þetta er ekki bara einhvers staðar út á túni. Þetta er á leikskólalóð og miklar líkur á að barn myndi finna þetta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Helsta ráð eftirsóttu karlkyns klámstjörnunnar

Helsta ráð eftirsóttu karlkyns klámstjörnunnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Edda Lovísa um áhrifin sem það hafði á sambandið þegar hún og kærastinn hættu að horfa á klám

Edda Lovísa um áhrifin sem það hafði á sambandið þegar hún og kærastinn hættu að horfa á klám
Fókus
Fyrir 5 dögum

Barkley skaut fast á sólmyrkvaáhorfendur – „Ég ætla ekki að sitja úti eins og hálfviti og bíða eftir myrkrinu“

Barkley skaut fast á sólmyrkvaáhorfendur – „Ég ætla ekki að sitja úti eins og hálfviti og bíða eftir myrkrinu“