Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sló heldur betur í gegn með nýrri Facebook-færslu. Færslan kom aðeins inn á síðu lögreglunnar fyrir klukkustund en síðan þá hafa 2500 manns brugðist við færslunni og fimmtíu manns deilt henni áfram.
Margir hafa skrifað við færsluna og tekið undir með fagnaðarlætum lögreglunnar.
Ein segir: „Þið eruð snillingar.“
„Ertu viss um að það sé ekki aprílgabb,“ spyr önnur.
Fyrir nokkrum dögum vakti svar lögreglunnar á Facebook mikla lukku. Netverji spurði um tveggja metra reglunna og svona svaraði lögreglan: