fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Bestu og verstu grímurnar á tímum COVID-19

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 28. mars 2020 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki óeðlilegt að fólk setji upp félagslegar grímur við ýmsar aðstæður og nú stendur mannkynið á tímamótum. Árið 2020 hefur, ásamt fjölda öðru, aukið vitundarvakningu fólks gagnvart áþreifanlegum grímum af ýmsu tagi. COVID-19 hefur sett veröldina á hliðina og skráð sig með ógnarhraða í sögubækurnar. Fólk víða um heim hefur gripið til hugmyndaríkra ráða með alls konar grímur, á almennum vettvangi eða í hlutverkaleik í einangrun.

Á undanförnum vikum hefur neytandinn, sem aldrei fyrr, sankað að sér streymisveitum, línulegri dagskrá og afþreyingu, ekki síst ævintýrum. Þá sakar ekki að renna yfir þekktar grímur kvikmyndasögunnar og sjá hvernig sumar fígúrur myndu spjara sig í farsótt á við kórónuveiruna. Til að krydda þetta fylgir einkunn, sem metin er eftir því hvort eða hvernig grímurnar gagnast í núverandi faraldri.

 

Svarthöfði 

Svarthöfði er búinn undir hvað sem er og líkur á veirusmiti sama sem engar. Vel græjaður, innsiglaður og flottur. Gæti þó reynst minniháttar ókostur að grímunni undir Svarthöfðahjálminum fylgja sólgleraugu.

10/10

Kylo Ren – The Force Awakens the Last Jedi Skywalker

Þessi sver sig í ætt við afa sinn, Svarthöfða, og af góðri ástæðu. Gríman hjá Kylo léttari, en því miður færðu ekki jafnflotta rödd og gamla fyrirmyndin. 

9/10

Bane – The Dark Knight Rises 

Bane er í hörkugóðum málum, svo framarlega sem hann snertir ekki andlitið með berum höndum. Hann er tengdur við sérstakt lofthylki og ofar öllu er grímuhönnunin grjóthörð. Helsti ókostur mikillar notkunar er litamismunurinn á kollinum eftir heitan dag í sólinni. 

8/10

Svínstrýnið í Saw

Jú, þessi steinliggur og ætti að verja höfuð og háls vel. Auk þess er nóg pláss undir grísatrýninu til að bæta við loftsíu.

En svona í alvöru, er ekki í lagi?

8/10

Spider-Man

Undir hefðbundnum kringumstæðum myndi fólk segja að á meðan þú nærð að anda gegnum spandex-ið, þá getur þú vissulega hóstað gegnum það. Nýjustu Spider-Man grímurnar eru þó gæddar einhverri undratækni frá Járnmanninum, annarri hetju sem væri í jafn sterkum, ef ekki betri, málum í þessari samantekt.

7/10

Guy Fawkes – V for Vendetta

Þessi gríma er ekki alslæm og ef við tökum allan búninginn úr V for Vendetta eins og hann leggur sig er hér einn vel varinn maður. Það getur þó verið óþægilegt til lengdar að anda með þessa grímu á andlitinu og fer rakinn heldur betur að segja til sín. Þó myndi þessi gríma standast flestar kröfur, væri ekki fyrir litla loftgatið við munninn sem býður hættunni heim. 

5/10

Tom Cruise í Vanilla Sky

Tom Cruise í Vanilla Sky yrði ekkert rosalega vel undirbúinn. Gríma hans er meira hugsuð sem eins konar gervihúð til að fela áverka hans og afmyndun eftir slæmt slys. Hún er sennilega þægileg í notkun (en óhugguleg fyrir annað fólk þegar skotist er í ríkið eða matvörubúðina) en það þyrfti hiklaust einhverja viðbót við gúmmíið þegar ofurflensa blasir við. Sama prinsipp gildir um hina svonefndu Michael Myers-grímu. 

5/10

Scarecrow – Batman Begins

Í kvikmyndinni Batman Begins er fígúran Scarecrow með fátt annað en prýðilega skreyttan kartöflupoka. Gott á hrekkjavöku, en pass í heimsfaraldri.

4/10

Jason Vorhees – Friday the 13th o.fl.

Jason Vorhees er ekki nógu vel varinn. Götin á blóðugu hokkígrímunni eru of stór til að halda veirunni frá. En mikið óskaplega er hún flott samt.

4/10

 

Ghostface (Scream)

Það er skárra að hafa þessa grímu en enga, en efnið er engu að síður þunnt og meira til skrauts. Það hjálpar heldur ekki að munurinn er algjörlega óvarinn í hönnuninni.

4/10

Hannibal Lecter

Það eina jákvæða við grímu Hannibals Lecter er að lítil hætta er á því að hann bíti næstu manneskju. Að vísu er mannætu venjulega haldið í strangri einangrun dag hvern, þannig að hann væri nokkuð öruggur. Gríman ein og sér gerir hins vegar ekki nokkurn skapaðan hlut, nema hræða yngstu hópana.

3/10

Batman (í gegnum árin)

Þessi verndar þig fyrir um það bil öllu … nema því sem máli skiptir í veirufaraldri. Ben Affleck fann að vísu lausn á þessu í sinni bíómynd þegar hann hjólaði í Súpermann.

2/10

Zorro

Það besta sem Zorro gæti gert í COVID-19 aðstæðunum væri að halda sig í hesthúsinu.

2/10

Gríman í The Mask

Þessi lýsir athyglissýki og stanslausri löngun til hreyfingar. Ekki mælt með því í einangrun.

1/10.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig