fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Yfirheyrslan: „Hæ, ég heiti Eva og er alkóhólisti“

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 29. september 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva María Mattadóttir starfar sem þjálfari hjá Dale Carnegie ásamt því að halda úti hlaðvarpinu Normið. Hana þyrstir að eigin sögn endalaust í fróðleik um mannlega hegðun og leiðir til þess að komast í „hamingjuzone-ið“ og hugarró. Eva María er í yfirheyrslu helgarinnar.

Hvar líður þér best?
Við sjó, það er einhver klikkuð orkuuppspretta. Náttúran er alger endurhleðsla og best er að vera þar með krökkunum að leika og hlæja.

Hvað óttastu mest?
Að það kvikni í mér! Svo er eins og ég breytist í villisvín þegar geitungar eru nálægt.

Hvert er þitt mesta afrek?
Að vera edrú í bata og uppskera alvöru hugarró. Jú, og líka að hafa náð að ýta manneskjum út úr mér!

Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Að vera extra í amerískum „sit-coms“. Fyndið að þykjast tala og hlæja en mega ekki gefa neitt hljóð frá sér allan daginn!

Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
„Hæ, ég heiti Eva og er alkóhólisti.“ Einu sinni þoldi ég ekki þegar fólk sagði „ég er þakklátur alkóhólisti“ því ég var enn að berjast í hrokanum. En í dag þarf ég að kyngja því að ég er einn hrikalega þakklátur alkóhólisti.

Hvernig væri bjórinn Eva María?
Óáfengur og sá allra ferskasti.

Besta ráð sem þú hefur fengið?
If you don’t ask, you don’t get.

Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Að skrapa storknaðan mat af gólfinu undir barnastólunum.

Besta bíómynd allra tíma?
The Green Mile, nær mér í hvert einasta skipti!

Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég myndi vilja vera klár fjárfestir. Er að hlusta mikið á svoleiðis hlaðvarpsþætti þessa dagana.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Sennilega að fara á svið í Hard Rock-kjallaranum með Norminu og Siggu Dögg að tala um kynlíf.

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
„Ég get þetta ekki.“

Hvaða geturðu sjaldnast staðist eða ert góð í að réttlæta að veita þér?
Sjávarsaltssúkkulaðiplötu frá Nóa Síríus, ég stúta henni á innan við fimm mínútum.

Hvað er á döfinni hjá þér?
Tveggja vikna frí á Sikiley, verkefnastýring hjá Dale Carnegie og framþróun hjá Normið Podcast! Virkilega spennandi verkefni framundan!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar